Af hverju fæ ég EKKI póst?

Um póst- og tölvupóstsamskipti

Ef þú telur að þú eigir að vera skráður bahá’íi og hefur ekki fengið kjörgögn send eða tölvupóst hvetjum við þig til að hafa samband við Bahá’í þjóðarskrifstofuna og kanna ástæðu þess.

Algengar ástæður þess að fá ekki póst:

  • Þú hefur flutt af landinu og svo til baka til Íslands en gleymt að tilkynna um flutninginn. Mikilvægt er að biðja þjóðarráð landsins sem þú fluttir frá að flytja réttindi þín til Íslands.
  • Þú hefur flutt innanlands og gleymt að tilkynna flutninginn til Bahá’í þjóðarskrifstofunnar.
  • Póstkassi er ekki merktur með tilhlýðilegum hætti. Pósturinn setur ekki bréf í póstkassa sem eru ómerktir eða með óljósri merkingu. Nafnið á póstkassanum þarf að stemma við utanáskrift bréfsins. Annars er póstur oftast endursendur og reynum við að hafa samband við viðkomandi og kanna ástæður þess. 

Algengar ástæður þess að fá ekki tölvupóst:

  • Þú hefur skipt um netfang og gleymt að láta okkur vita. 
  • Þú hefur óvart afskráð þig af tölvupóstlista okkar. Þá þurfum við að senda þér skráningarhlekk. Við getum ekki bætt þér á listann handvirkt eftir afskráningu.
  • Þú hefur aðeins gefið okkur heimild til að senda þér fréttabréf í tölvupósti og það hefur e.t.v. ekki komið út lengi.
Leit