Hverju trúa bahá’íar?
„Þess er ekki að miklast sem elskar ættjörð sína heldur þess sem elskar allan heiminn. Jörðin er aðeins eitt land og mannkynið íbúar þess.“
—Bahá’u’lláh
—Bahá’u’lláh
Hverju trúa bahá'íar?
Kenningar bahá’í trúarinnar blása fólki um allan heim í brjóst
eldmóð er það leitast við að bæta eigið líf og stuðla að framþróun siðmenningar. Trúin lítur svo á að
undirstöðuþættir í framþróun siðmenningar sem færist nær fullþroska felist í viðurkenningu á einingu Guðs og
trúarbragða hans, einingu mannkyns, lausn frá fordómum, vitund um göfugt eðli mannsins, stighækkandi opinberun
trúarlegs sannleika, að hver og einn þurfi að þróa andlega eiginleika sína, að samþætta tilbeiðslu og þjónustu,
hafi óbilandi trú á jafnrétti kynjanna, samræmi trúar og vísinda, mikilvægi menntunnar og geri sér grein fyrir
að réttlæti verði að vera leiðarsljós allrar mannlegrar viðleitni. Hún fjallar um eðli þessara þátta og þeirra
grundvallartengsla sem binda einstaklinga, samfélög og stofnanir traustum böndum á þeirri vegferð.
„Drottinn yðar, hinn almiskunnsami, elur í hjarta
sínu þá ósk
að sjá allt mannkyn sem eina sál og einn líkama.“
að sjá allt mannkyn sem eina sál og einn líkama.“
– Bahá’u’lláh
Nokkur svið bahá’í trúarinnar Hér fyrir neðan er umfjöllun um valdar meginkenningar bahá’í
trúarinnar þar sem leitast hefur verið við að flokka þær eftir sviðum.

Bahá’u’lláh og sáttmáli hans
Sáttmálinn sem Bahá’u’lláh gerði við fylgjendur sína er einstæður í sögu mankynsins og varðar vald til bindandi túlkunar og löggjafar innan trúarinnar.

Líf andans
Opinberun Bahá’u’lláh staðfestir að tilgangur lífs okkar sé að þekkja Guð og nálgast hann

Táj, höfuðfat sem Bahá'u'lláh bar.
Bahá'í vefbókasafnið og bóksafn þjóðarmiðstöðvarinnar
Til að öðlast betri skilning á bahá’í trúnni leggjum við til að þú heimsækir Bahá’í vefbókasafnið þar sem þú getur lesið rit Bábsins, Bahá’u’lláh og ‘Abdu’l‑Bahá auk annarra rita eftir Shoghi Effendi og valin skilaboð frá Allsherjarhúsi réttvísinnar. Einnig er þér velkomið að heimsækja Bahá'í þjóðarmiðstöðina á opnunartíma hennar og kaupa bækur í verslun Bahá'í útgáfunnar eða fá lánaðar bækur úr bókasafni þjóðarmiðstöðvarinnar.
„Grundvallarásetningur trúar Guðs og trúarbragða Hans er að vernda hag,
stuðla að einingu og uppfóstra anda ástar og bræðralags meðal manna. … Breytingar og byltingar heimsins
geta aldrei dregið mátt úr neinu sem reist er á þessum grundvelli og umbrot árþúsunda fá ekki grafið
undan stoðum þess.“
(Úrval úr ritum Bahá’u’lláh)
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
