Af hverju fæ ég póst?

Um póstsamskipti og upplýsingagjöf

Ef þú ert skráð(ur) í bahá’í samfélagið, hefur náð 18 ára aldri og hefur kosningarétt, ættir þú að lágmarki að fá kjörgögn send vegna kosninga til fulltrúa á Landsþing bahá’ía á Íslandi. Einnig færðu kjörgögn send vegna svæðisráðskosninga ef þú ert búsett(ur) í sveitarfélagi þar sem andlegt svæðisráð er starfandi.

Þátttaka allra fullorðinna meðlima samfélagsins í þessum kosningum er sérstakt einkenni á kerfi Bahá’u’lláh. Þess vegna er það skylda og mikil forréttindi bahá’ía að kjósa sem ábyrgur þegn í þeim nýja heimi sem er að fæðast til þeirra stofnana sem stjórna starfsemi bahá’í samfélagsins. Tómlæti og vanræksla hvað þetta varðar af hálfu átrúandans er framandi anda málstaðarins … Í bréfi sem skrifað var fyrir hönd Shoghi Effendi lýsti hann bahá’í kosningum þannig: „Eitt af meginmarkmiðum bahá’í kosningareglna og aðferða er að þroska anda ábyrgðar með sérhverjum átrúanda. Með því að leggja áherslu á nauðsyn þess að hann hafi fullt frelsi í kosningum, er honum lögð á herðar sú skylda að verða virkur og vel upplýstur meðlimur bahá’í samfélagsins þar sem hann býr.“ 


Auk þess að fá kjörgögn í pósti geta bahá’íar valið um að vera á tölvupóstlista og eru þeir tveir um þessar mundir, annars vegar BPL (Bahá’í póstlistlinn) þar sem reglulega eru sendar út tilkynningar til bahá’ía og hins vegar fréttabréf sem er sent sjaldnar. Alltaf er hægt að afskrá sig af þessum tölvupóstlistum.
Leit