
Bahá’í samfélagið
Hverju trúa bahá’íar?
Bahá’í trúin leggur áherslu á einingu mannkynsins, jafnrétti kynjanna, samræmi trúar og vísinda, nauðsyn þess að menntun sé öllum aðgengileg og réttlæti liggi til grundvallar í öllu skipulagi þjóðfélagsins. Bahá’íar, fylgjendur trúarinnar, vinna að því að bæta líf sitt og leggja jafnframt sitt af mörkum til samfélagsins með þátttöku í uppbyggingu sífellt réttlátari og friðsælli siðmenningar.
Bahá’í trúin var fyrst nefnd á prenti hér á landi árið 1908 og síðar skrifaði Matthías Jochumsson afar jákvæða grein um trúna árið 1915. Árið 1924 kynntist Hólmfríður Árnadóttir bandarískum bahá’ía en þessi kynni leiddu til þess að hún þýddi og gaf út bókina Bahá’u’lláh og nýji tíminn sem varð þar með fyrsta bókin um trúna á íslensku. Síðan þá hafa fjölmörg hjörtu orðið snortin af kenningum trúarinnar. Í dag eru skráðir bahá’íar á Íslandi fleiri en 300.
Hvað gera bahá’íar?
Fréttir
Bjartar horfur
Bahá’í samfélagið á Íslandi
Myndbönd
Svipmyndir úr sögu starfs í hundrað ár
Glimpses of a Hundred Years of EndeavourLjós fyrir heiminn
(Light to the World)Fyrirmynd
(Exemplar)Lengd: 55 mínútur.
Lýsir af degi
(Light to the World)Athafnir og áfangar lífsins
Hátíðir og helgidagar
Fjármögnun







