Svar við kalli Bahá’u’lláh
Tvíþættur tilgangur lífsins
Að fágun innri skaphafnar mannsins og þjónusta við mannkynið séu óaðskiljanlegir þættir lífsins, er mikilvæg hugmynd í bahá’í kenningunum. Shoghi Effendi segir í bréfi sem skrifað var fyrir hans hönd:
„Við getum ekki aðskilið hjarta mannsins frá umhverfi hans og sagt að um leið og annað hvort sé endurbætt muni allt batna. Maðurinn er samofinn heiminum. Innra líf hans mótar umhverfið og verður sjálft fyrir djúpum áhrifum af því. Annað verkar á hitt og sérhver varanleg breyting í lífi mannsins er afleiðing þessara gagnkvæmu viðbragða. “
Í ljósi þessa hafa bahá’íar lært að meta tvíþættan tilgang sem er grundvallaratriði í lífi þeirra: Að sinna eigin andlega og vitsmunalega vexti og að stuðla að umbreytingu þjóðfélagsins.
Þessi tvíþætti tilgangur hjálpar til við að móta viðleitni bahá’ía á öllum sviðum. Þannig er til dæmis ekki aðeins ætlast til þess að þeir biðji og íhugi daglega í einkalífi sínu, heldur einnig að þeir leggi sig fram um að fylla umhverfi sitt bænaranda; þeim er ekki aðeins ætlað að dýpka eigin þekkingu á trúnni, heldur einnig að deila kenningum Bahá’u’lláh með öðrum; þeim er ekki aðeins boðið að læra að standast heimtingar sjálfsins í eigin lífi, heldur einnig að leitast við, með hugrekki og auðmýkt, að snúa við tilhneigingum menningar sem vegsamar sjálfsfullnægju og grefur undan stoðum samstöðu.

Frá íslenskuspjallhópi ætluðum nýbúum í litlum bæ á Íslandi

Lagt á andlega braut
Kenningar bahá’í trúarinnar leggja áherslu á að hver og einn beri ábyrgð á eigin andlega þroska. Þótt stofnanir séu til staðar þá hvílir ábyrgðin á andlegum vexti að endingu á hverjum og einum einstaklingi.

Þróun heimssamfélags
Sérhver bahá’íi lítur á sjálfan sig samtímis sem meðlim svæðis-, þjóðar- og heimssamfélags bahá’ía. Allt er gert til að tryggja að á öllum þessum stigum haldist samfélögin lífleg og opin öllu fólki.

Þjálfunarstofnunin
Allsherjarhús réttvísinnar kynnti hugtakið „þjálfunarstofnun“ um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Tilgangur hennar er að aðstoða einstaklinga við að dýpka skilning sinn á kenningum bahá’í trúarinnar og öðlast þá andlegu innsýn og hagnýtu færni sem þeir þurfa til að sinna starfi samfélagsins.

Tilbeiðsla
Þjónusta og tilbeiðsla eru kjarninn í því samfélagsmynstri sem bahá’íar um allan heim leitast við að koma á fót. Þetta eru tveir sérstakir en óaðskiljanlegir þættir sem knýja samfélagslífið áfram.

Fjölskyldulíf og börn
Fjölskyldan er kjarni mannlegs samfélags. Hún er mikilvægur vettvangur fyrir þroska lofsverðra eiginleika og hæfni.

Ungmenni
Ungt fólk hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu bahá’í trúarinnar. Bábinn sjálfur kunngerði köllun sína þegar hann var aðeins tuttugu og fimm ára gamall og margir fylgjenda hans voru ungir að árum þegar þeir gengu trú hans á hönd.

Hæfni stofnana
Sú orka sem bahá’íar verja til að efla getu stofnana sinna og sú alúð sem þeir sýna við að þróa og þroska stjórnunarferla og -einingar er ekki aðeins sprottin af löngun til að auka skilvirkni í stjórnun eigin málefna bahá’í samfélagsins.
„Sinnið heilshugar þörfum þeirrar aldar sem þér lifið á og beinið athygli yðar að nauðþurftum hennar og kröfum.“
–Bahá’u’lláh

Þátttaka í lífi þjóðfélagsins
Bahá’íar um allan heim – bæði sem einstaklingar og sameiginlega – leitast við að taka þátt í lífi þjóðfélagsins og vinna hlið við hlið með fjölbreyttum hópum að því að stuðla að framförum efnislegrar og andlegrar siðmenningar.

Ofsóknir á hendur bahá’íum
Sed pede ullamcorper amet ullamcorper primis, nam pretium suspendisse neque, a phasellus sit pulvinar vel integer.

Athafnir og áfangar lífsins
Ein af sérkennum bahá’í trúarinnar er að hún hefur tiltölulega fáa helgisiði og táknrænar athafnir miðað við margar eldri trúarhefðir. Bahá’u’lláh afnam margt af því sem einkenndi fyrri trúarhefðir, þar á meðal prestastétt.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
