Þjálfunarstofnunin
Samtal vina í þúsundum félagslegra rýma
Til að byggja betri heim þarf sívaxandi hóp fólks sem er fært um að leggja sitt af mörkum til að leysa hin ótalmörgu verkefni sem fyrir liggja.
Í þessu sambandi kynnti Allsherjarhús réttvísinnar hugtakið „þjálfunarstofnun“ um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Tilgangur hennar er að aðstoða einstaklinga við að dýpka skilning sinn á kenningum bahá’í trúarinnar og öðlast þá andlegu innsýn og hagnýtu færni sem þeir þurfa til að sinna starfi samfélagsins.
Eðli þjálfunarstofnunarinnar má skilja með því að ímynda sér samfellt samtal sem á sér stað meðal vina í þúsundum félagslegra rýma – í hverfum, þorpum, skólum, háskólum og á vinnustöðum – sem snýst um að stuðla að framförum siðmenningar með því að beita kenningum Bahá’u’lláh. Eftir því sem þátttakendum í samtalinu fjölgar, fara af stað ferli til að ná sameiginlegum andlegum og efnislegum markmiðum á hverjum stað.
Við getum því litið svo á að þjálfunarstofnunin haldi fjarkennslukerfi gangandi til að knýja áfram og greiða fyrir þessu samtali sem er í stöðugri þróun. Meginþættir kerfisins eru námshringur, leiðbeinandi og námsefni sem byggir á ritum bahá’í trúarinnar og lýsir þeirri andlegu innsýn og þekkingu sem hefur áunnist í því ferli að hrinda kenningum Bahá’u’lláh í framkvæmd. Námsefnið hjálpar einstaklingnum að taka þátt í umræðunni um það sem bahá’í samfélagið hefur lært af reynslunni í viðleitni sinni til að stuðla að framförum siðmenningar. Mikilvægara er þó að það leitast við að virkja hann eða hana í þessu lærdómsferli og við að miðla viðkomandi þekkingu.
Námshringur er lítill hópur sem hittist gjarna einu sinni til tvisvar í viku í eina til tvær klukkustundir, yfirleitt heima hjá einum meðlimanna, til að kafa í námsefnið. Öllum fimmtán ára og eldri, hvort sem þeir eru bahá’íar eða ekki, er velkomið að taka þátt. Leiðbeinandi sem tengist þjálfunarstofnuninni verkstýrir hópnum. Leiðbeinendur hafa enga sérstaka stöðu. Þeir eru einfaldlega lengra komnir í námi sínu á efninu. Allir eiga kost á að þjóna sem leiðbeinendur við sum tækifæri, en taka þátt sem almennir meðlimir námshrings við önnur. Allir þátttakendur eru álitnir virkir gerendur í eigin námi og leiðbeinendur leitast við að skapa andrúmsloft sem hvetur einstaklinga til að taka ábyrgð á því menntunarferli sem þeir taka þátt í. Námshringur á að vera vettvangur sem leiðir til andlegrar og siðferðilegrar eflingar.
Námsefnið inniheldur kafla úr ritum bahá’í trúarinnar sem tengjast ákveðnum viðfangsefnum og þjónustuverkum. Saman hugleiða þátttakendur hvernig beita megi þeim hugmyndum sem þar koma fram í lífi sínu, bæði sem einstaklingar og sem heild. Meðal þeirra spurninga sem þeir kanna er hvernig skapa megi umhverfi sem tengir fólk við þá andlegu krafta sem losna úr læðingi með bæn og íhugun; hvernig styrkja megi vináttubönd og koma á innihaldsríkum samskiptum milli fólks af ólíkum uppruna; hvernig gera megi menntun barna að órjúfanlegum hluta af samfélagslífi þeirra; hvernig viðhalda megi umhverfi sem hjálpar ungu fólki að þroska vitsmunalega og andlega hæfileika sína; hvernig skapa megi krafta innan fjölskyldunnar sem leiða til efnislegrar og andlegrar velmegunar.
Til að bregðast við efninu sem þeir vinna með og með stuðningi frá stofnunum sínum, rísa þátttakendur upp til að sinna ákveðnum þjónustuverkum. Karlar og konur, ungir sem aldnir, gera sér grein fyrir því að þeir hafa máttinn í höndum sér til að endurskapa heiminn í kringum sig. Eftir því sem fleiri og fleiri helga sig þeirri sýn um umbreytingu einstaklings og samfélags sem námskeið stofnunarinnar ýta undir, byggist smám saman upp hæfni í samfélaginu til að endurspegla lífsmynstur þar sem þjónusta og tilbeiðsla er þungamiðjan.
Þjálfunarstofnunin
Skoðaðu yfirlit yfir námskeið þjálfunarstofnunarinnar og lýsingu þeirra.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
