Bænin órjúfanlegur hluti af lífi bahá’ía

Þjónusta og tilbeiðsla eru kjarninn í því samfélagsmynstri sem bahá’íar um allan heim leitast við að koma á fót. Þetta eru tveir sérstakir en óaðskiljanlegir þættir sem knýja samfélagslífið áfram. ‘Abdu’l-Bahá skrifar: „Árangur og velmegun eru háð þjónustu við Guð og tilbeiðslu Hans.“

Bænin er órjúfanlegur hluti af lífi bahá’ía, hvort sem er hjá einstaklingnum, samfélaginu eða stofnunum þess. Bahá’íar snúa hjörtum sínum til Guðs í bæn ítrekað yfir daginn – biðja um aðstoð Hans, biðja fyrir ástvinum, færa lof og þakkir og leita guðlegrar staðfestingar og leiðsagnar. Auk þess hefjast og enda samráðsfundir og samkomur þar sem vinir koma saman til að takast á við hin ýmsu verkefni, venjulega með bænum.
Bahá’íar halda einnig samkomur, oft inni á heimilum, þar sem bæði bahá’íar og aðrir sameinast í bæn. Bænastundir sem þessar vekja andlega næmni þátttakenda og ásamt þjónustuverkum sem þeir inna af hendi leiða þær til samfélagsmynsturs sem er gegnsýrt af helgunaranda og miðar að því að ná fram andlegri og efnislegri velmegun.

Samþætting helgunar og þjónustu birtist í tilbeiðsluhúsinu – stofnun sem ber nafnið Mashriqu’l-Adhkár. Hún samanstendur af aðalbyggingu sem er miðpunktur tilbeiðslu á ákveðnu landsvæði og hliðarstofnunum sem eru helgaðar menntun, heilbrigðisþjónustu og annarri þjónustu er varðar félagslegar og efnahagslegar framfarir samfélagsins. Þótt aðeins fá Mashriqu’l-Adhkár séu til í heiminum í dag er verið að sá fræjum fyrir stofnun þeirra í sífellt fleiri samfélögum og í framtíðinni munu öll byggðarlög njóta góðs af slíkri stofnun.
Helgistundir á Íslandi
Hér á landi eru reglulegar helgistundir eða bænastundir haldnar á flestum stöðum þar sem bahá’íar búa. Margar eru á einkaheimilum og eru af ýmsu tagi, allt frá fjölskyldubænastundum og bænastundum vina til helgistunda sem opnar eru öllum. Hér fyrir neðan er listi yfir nokkrar bahá’í helgistundir á Íslandi sem opnar eru öllum. Hafið samband við Bahá’í þjóðarskrifstofuna til að fá nánari upplýsingar.

  • Bænastundir í Árskógum einu sinni á mánuði.
  • Bænakvöld og opið hús í Bahá’í svæðismiðstöðinni í Reykjanesbæ, á fimmtudagskvöldum kl. 20:00.
  • Bænastund á einkaheimili á Akureyri, vikulega á þriðjudögum.
  • Kyrrðarstund á einkaheimili í Mosfellsbæ, á mánudagskvöldum kl. 19:30.
  • Bænastund á einkaheimili í Garðabæ, annan hvern föstudag.
  • Bænastundir á Zoom – á hverju kvöldi fyrir svefninn kl. 21:00 (á vegum einstaklings).

Bahá’í tilbeiðsluhús

 Bahá’íar um allan heim eru í dag að sá fræjum að bahá'í tilbeiðsluhúsum með helgistundum sínum.

Bahá’í tímatalið

Baháʼí tímatalið, þekkt sem Badí‘-tímatalið, var kynnt til sögunnar af Bábinum.  „Upptaka nýs tímatals í hverju trúarkerfi er tákn um kraft guðlegrar opinberunar til að umskapa mannlegar hugmyndir um efnislegan, félagslegan og andlegan veruleika.“  Þetta tímatal samanstendur af 19 mánuðum með 19 dögum hver, auk aukadaga sem kallast Ayyám-i-Há.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Leit