Bahá’í tilbeiðsluhús
Mashriqu’l-Adhkár
sem þýðir „dögunarstaður minningar Guðs“, er stofnun sem Bahá’u’lláh kvað á um sjálfur. Hún er lykilhugtak í samfélagslífi bahá’ía og gefur samruna tilbeiðslu og þjónustu áþreifanlegt form.
Bahá’íar um allan heim eru í dag að sá fræjum sem Mashriqu’l‑Adhkár munu að lokum vaxa upp af. Ferlið hefst með einföldum tilraunum til að opna persónuleg og sameiginleg rými fyrir bænir. Þjónustuverk eru síðan felld inn í mynstur athafna sem er í sífelldri þróun og þannig verður möguleg sjálfbær viðleitni sem ætlað er að ljá hinum ýmsu þáttum samfélagslífsins helgunaranda. Endanleg stofnun áþreifanlegrar byggingar markar annað mikilvægt stig í að uppfylla sýn Bahá’u’lláh um tilbeiðsluhúsin.
Hin áþreifanlega bygging Mashriqu’l‑Adhkár samanstendur af aðalbyggingu – tilbeiðsluhúsi – ásamt nokkrum aukabyggingum. Þótt Mashriqu’l ‑Adhkár sé miðpunktur tilbeiðslu á landfræðilegu svæði er tilgangur þess ekki eingöngu að vera staður fyrir bænir. ‘Abdu’l-Bahá útskýrði að með því að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustu ætti það einnig að styðja við félagslegar og efnahagslegar framfarir samfélagsins og veita þeim sem eru hjálparþurfi skjól, aðstoð og hjálp. Í þessu sambandi sá ‘Abdu’l-Bahá fyrir sér að hliðarstofnunum – svo sem sjúkrahúsi, skóla, háskóla, hjúkrunarheimili og gistiheimili fyrir ferðalanga – yrði smám saman bætt við tilbeiðsluhúsið.
Shoghi Effendi skrifaði um Mashriqu’l‑Adhkár sem þá var í byggingu nálægt Chicago í Bandaríkjunum:
„ ... hversu mikinn innblástur sem hugmyndin um bahá’í tilbeiðslu veitir, eins og hún birtist í veglegri höfuðbyggingu þessa mikla musteris, er ekki hægt að líta á hana sem hið eina, eða jafnvel mikilvægasta hlutverkið sem Bahá’u’lláh ætlaði Mashriqu’l‑Adhkár að gegna í lífrænu lífi bahá’í samfélagsins. Engin von er til að bahá’í tilbeiðsla, hversu háleit sem hugmyndin er og hversu ástríðufull sem hún kann að vera, geti náð meiru en þeim fátæklega og oft hverfula árangri sem íhugun meinlætamannsins eða altarisganga hins óvirka tilbiðjanda skilar, sé hún aðskilin viðfangsefnum hliðarstofnana Mashriqu’l‑Adhkár sem snúa að samfélagi, mannúð, menntun og vísindum. Hún getur ekki veitt tilbiðjandanum sjálfum varanlega fullnægju og ávinning, hvað þá mannkyninu almennt, án þess eða fyrr en henni er umbreytt og hún yfirfærð í þá kraftmiklu og óeigingjörnu þjónustu við málstað mannkynsins sem er hin æðstu forréttindi hliðarstofnana Mashriqu’l‑Adhkár að greiða fyrir og stuðla að.“
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
