Bahá’í tímatalið

Badí’ tímatalið

Baháʼí tímatalið, þekkt sem Badí‘-tímatalið, var kynnt til sögunnar af Bábinum. Bahá’u’lláh staðfesti og tók upp þetta tímatal og ákvað að upphaf þess skyldi miðast við yfirlýsingarár Bábsins árið 1844.
Í skilaboðum varðandi almenna innleiðingu Badí‘ tímatalsins segir Allsherjarhús réttvísinnar: 

„Upptaka nýs tímatals í hverju trúarkerfi er tákn um kraft guðlegrar opinberunar til að umskapa mannlegar hugmyndir um efnislegan, félagslegan og andlegan veruleika. Með því eru helgir atburðir dregnir fram, staða mannkynsins í tíma og rúmi endurhugsuð og taktur lífsins lagfærður.“ 

Þar sem bahá’í tímatalið (skammstafað b.t.) var stofnað af tveimur stofnendum, telja helgidagar bahá’í trúarinnar til atburða sem tengjast fæðingu, yfirlýsingu og fráfalli bæði Bahá’u’lláh og Bábsins. 

Þetta tímatal samanstendur af 19 mánuðum með 19 dögum hver, auk aukadaga sem kallast Ayyám-i-Há. Fjöldi þessara aukadaga er breytilegur eftir því hvenær jafndægur á vori ber upp á norðurhveli jarðar frá ári til árs.
Bábinn gaf hverjum hinna nítján mánaða ársins nafn eftir tilteknum eigindum Guðs. Bahá’í nýárið er stjarnfræðilega ákvarðað út frá vorjafndægri. Helgidagar fylgja sóltímatali nema hvað fæðingarhátíðir Bábsins og Bahá’u’lláh, samliggjandi hátíðir sem gjarna er talað um  sem tvenndarhátíð, færast til á hverju ári og eru haldnar á fyrsta og öðrum degi eftir að áttunda nýtt tungl birtist eftir naw-rúz. 

Samkvæmt bahá’í tímatalinu er dagur tímabilið frá sólsetri til sólseturs. Þar af leiðandi hefst dagurinn sem nítjándagahátíð, helgidagur eða aðrar mikilvægar dagsetningar eru haldnar hátíðlegar við sólsetur kvöldið fyrir samsvarandi dagsetningu í Gregoríska tímatalinu. Til dæmis, ef naw-rúz ber upp á 21. mars, er nýárinu fagnað frá sólsetri 20. mars til sólseturs 21. mars. Bahá’u’lláh kvað á um að á stöðum sem eru mjög norðar- eða sunnarlega á hnettinum þar sem sólargangur er ójafn megi miða sólarlag og sólarupprás við ákveðnar tímasetningar. Gildir það hér á Íslandi og hefst því nýr dagur kl. 18:00 á öllum árstíðum.

Bahá’í dagatalið

Skoðaðu lista yfir nítjándagahátíðir og helgidaga og nánari smáatriði varðandi bahá'í tímatalið. Notaðu áraskiptinn til að skoða dagsetningar hátíða á næstu árum miðað við Gregoríska tímatalið.
Leit