Hæfni stofnana
Þróun stjórnskipulags bahá’í samfélagsins stig af stigi og hvernig tengdir ferlar þess hafa slípast til eru svið sem hafa fengið verulega athygli frá upphafi bahá’í trúarinnar. Farið er í saumana á því í grein um stjórnskipulag bahá’í trúarinnar í hlutanum „Hverju trúa bahá’íar“ á þessum vef.
Sú orka sem bahá’íar verja til að efla getu stofnana sinna og sú alúð sem þeir sýna við að þróa og þroska stjórnunarferla og stjórnunareiningar er ekki aðeins sprottin af löngun til að auka skilvirkni í stjórnun eigin málefna bahá’í samfélagsins. Þeir sjá að með því að stuðla að þessari þróun eru þeirra að veita nauðsynlegt framlag til mynsturs nýrrar þjóðfélagsskipanar sem Bahá’u’lláh sá fyrir, til nýrra aðferða sem þroskað mannkyn mun beita á sviði stjórnmála, félagsmála og menningar.
Rými til samráðs
Einlægt, óhlutdrægt og hjartanlegt samráð er nauðsynlegt fyrir velgengni hvers kyns sameiginlegs verkefnis og miðlæg staða þess í starfsemi bahá’í stofnana er eitt af einkennum bahá’í stjórnskipulagsins.
Nítjándagahátíðin
Einu sinni á nítján daga fresti halda bahá’í samfélög fundi á hverju sveitarfélagi. Þessar samkomur eru þekktar sem „nítjándagahátíðin“ og eru hornsteinn samfélagslífs bahá’í trúarinnar.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
