Nítjándagahátíðin
Hornsteinn samfélagslífs
Einu sinni á nítján daga fresti halda bahá’í samfélög fundi á hverju sveitarfélagi. Þessar samkomur eru þekktar sem „nítjándagahátíðin“ og eru hornsteinn samfélagslífs bahá’í trúarinnar.
Kveðið er á um hátíðina í Kitáb-i-Aqdas af Bahá’u’lláh. Hann ráðlagði fylgjendum sínum að hittast einu sinni í hverjum bahá’í mánuði, „jafnvel þótt það sé með vatni einu saman“. „Þessi hátíð,“ segir ‘Abdu’l-Bahá, „er haldin til að efla félagsskap og kærleika, til að minnast Guðs og biðja til hans með iðrandi hjörtum og til að hvetja til góðgerðarstarfa.“ „Hún gleður huga og hjarta,“ skrifar hann í öðrum texta. „Sé þessi hátíð haldin á viðeigandi hátt munu vinirnir finna sig, einu sinni á nítján daga fresti, andlega endurnýjaða af afli sem ekki er af þessum heimi.“

Frá nítjándagahátíð í Reykjavík
Frá nítjándagahátíð í Kópavogi
Þótt nítjándagahátíðin geti tekið á sig mismunandi ytri myndir í ólíkum heimshlutum og endurspegli aðstæður og venjur hvers samfélags, inniheldur dagskrá hennar alltaf rennt: helgistund þar sem bænir- og ritningar eru lesnar eða sungnar, stund sem er helguð því að deila fréttum og eiga samráð um málefni samfélagsins og stund fyrir félagsleg samskipti og samveru. Nítjándagahátíðin gefur samfélaginu tækifæri til að koma saman og ræða málefni sín og fyrir andlega svæðisráðið – stjórnstofnun bahá'í-samfélagsins á hverjum stað – til að fylgjast með þeim málefnum sem samfélagið ber fyrir brjósti og styrkja samband sitt við það. Samráð á þessum reglulegu samkomum skapar einnig vettvang svo vaxandi samfélagsvitund sé tjáð með uppbyggilegum hætti og leiðir oft til þess að litlir hópar myndast utan um samfélagsstarf.
Í byrjun hvers mánaðar koma því vinahópar saman í tugþúsundum byggðarlaga í nánast öllum kimum jarðar í anda kærleika til að biðja, hugleiða eigin andlega vöxt og ráðgast um einstaklingsbundna og sameiginlega viðleitni sína til að bæta samfélög sín, hversu lítilfjörleg sem hún kann að vera. Alls staðar byggir samráðið á sömu sýn um betri heim og þátttakendur – karlar og konur, ungir sem aldnir – sýna einingu á ótrúlega háu stigi, ekki aðeins í sameiginlegri sannfæringu sinni um grundvallarreglurnar sem eiga að einkenna þennan betri heim, heldur einnig í þeim aðferðum og þeirri nálgun sem þeir tileinka sér í daglegu lífi til að stuðla að því að hann verði smám saman að veruleika.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi