Rými til samráðs

„Samráð færir aukna vitund ...“

 „Samráð færir aukna vitund og breytir getgátu í fullvissu. það er skínandi ljós sem leiðbeinir og lýsir veginn í myrkum heimi. Allir hlutir eiga sér stöðu þroska og fullkomnunar. Skilningsþroskinn er birtur með atbeina samráðs.“

 –Bahá’u’lláh
Einlægt, óhlutdrægt og hjartanlegt samráð er nauðsynlegt fyrir velgengni hvers kyns sameiginlegs verkefnis og miðlæg staða þess í starfsemi bahá’í stofnana er eitt af einkennum bahá’í stjórnskipulagsins. Tilgangur slíks samráðs er ekki aðeins að skapa ramma þar sem hægt er að taka sameiginlegar ákvarðanir – þótt það sé mikilvægt. Það er leið til að samræma sjónarmið, efla einingu meðal meðlima samfélagsins, styrkja bönd trausts og kærleika milli einstaklinga og stofnana og leyfa nýrri innsýn í flókin mál að koma fram og vera skoðuð af hlutlægni. Það þjónar einnig þeim tilgangi að stuðla að kerfisbundnum aðgerðum, viðhalda einbeitingu meðal þátttakenda í tiltekinni aðgerð og leyfa ólíkum sjónarmiðum að verða hluti af skilningi hópsins á viðfangsefnunum og leiðbeina framvindu starfseminnar sem þeim tengjast. Í þessu sambandi er samráð ómissandi þáttur í þeirri lærdómsaðferð sem bahá’í samfélagið hefur tileinkað sér á öllum sviðum starfsemi sinnar.

Árangursríkt samráð, sem hvorki leyfir árekstra og þrætur né að skoðunum eða áætlunum sé þröngvað upp á aðra, er lykilatriði í starfsemi andlegra svæðis- og þjóðarráða. Samt sem áður er meginreglum samráðs beitt, með mismikilli formfestu, á margs konar öðrum vettvangi: Meðal mismunandi stjórnstofnana; innan fjölskyldunnar; milli stofnana og samfélagsins; meðal þátttakenda í tilteknum verkefnum og – í sívaxandi mæli – meðal einstaklinga og starfsaðila sem starfa á svæðisstiginu til að stýra framlagi bahá’í samfélagsins til umbóta í samfélaginu.
 Allsherjarhús réttvísinnar hefur skrifað: 

… bahá’í samráð á að fara fram í fyllsta kærleika, einlægni og einingu. Þátttakendur verða að koma saman í bænarhug, leita aðstoðar frá ríki dýrðar, tjá hugsanir sínar frjálslega, gefa upp á bátinn fastheldni við eigin skoðanir og íhuga af sanngirni og gaumgæfni skoðanir annarra svo samstaða megi nást. ‘Abdu’l-Bahá ráðleggur okkur að ef í ljós kemur, við ákvarðanatöku, að umræður hafa dregist á langinn eða valdið deilum, skuli fresta samráði og taka það upp aftur á heppilegri tíma. Verið þess fullviss að þegar þið takið þátt í bahá’í samráði innan fjölskyldna eða í litlum hópum, munu einlægar tilraunir ykkar til að fylgja þessum meginreglum, með krafti sáttmálans og með guðlegri aðstoð, gera ykkur kleift að leysa langflest þau mál sem þið standið frammi fyrir. Auðvitað verður að muna að tilgangur samráðs þarf ekki alltaf að vera að komast að ákveðinni eða endanlegri niðurstöðu. Oft getur markmiðið einfaldlega verið að eiga skoðanaskipti til að hjálpa til við að skýra tiltekið mál og koma á sameiginlegri sýn.
Leit