Athafnir og áfangar lífsins
Ein af sérkennum bahá’í trúarinnar er að hún hefur tiltölulega fáa helgisiði og táknrænar athafnir miðað við margar eldri trúarhefðir. Það er ekki vegna þess að bahá’í trúin meti ekki andlega vídd mannlífsins, heldur vegna þess að áherslan er lögð á innri umbreytingu, persónulegt samband við Guð og virka þjónustu við samfélagið fremur en formlegar athafnir.
Bahá’u’lláh afnam margt af því sem einkenndi fyrri trúarhefðir, þar á meðal prestastétt. Bahá’í trúin leitast við að forðast að trúarlíf verði háð sérstöku milliliðakerfi eða röð helgra athafna sem einstaklingur þarf að gangast undir til að njóta fullrar þátttöku í samfélaginu. Til dæmis er engin skírn nauðsynleg til að verða bahá’íi, engin ferming og, eins og áður sagði, engin vígð prestastétt sem framkvæmir helgisiði.
Þess í stað gengur fólk trúnni á hönd með meðvitaðri yfirlýsingu um trú sína þegar það er orðið nógu þroskað til að taka slíka ákvörðun sjálft. Í bahá’í trúinni er lögð áhersla á að trú sé afrakstur eigin leitar að sannleikanum. Þess vegna er ekki til samsvarandi skírn barna eða ferminga unglinga. Þegar einstaklingur ákveður að gerast bahá’íi er það fyrst og fremst persónuleg trúaryfirlýsing og formleg skráning í samfélagið.
Bahá’u’lláh lagði áherslu á að trúin væri ætluð allri mannkynsfjölskyldunni. Flóknir eða menningarbundnir helgisiðir geta verið mismunandi milli landa og þjóða. Einfaldari trúariðkun auðveldar því að viðhalda einingu í mjög fjölbreyttu alþjóðlegu samfélagi. Þess vegna eru fáar skyldubundnar athafnir og þær eru einfaldar í framkvæmd.
Það eru þó til nokkrar helgar athafnir. Meðal þeirra sem Bahá’u’lláh kvað á um sjálfur eru:
- Dagleg skyldbæn.
- Fasta nítján daga ársins.
- Bahá’í hjónavígsla með tiltekinni hjónabandsyfirlýsingu.
- Bahá’í jarðarför með sérstakri bæn fyrir hinum látna.
- Nítjándagahátíðin (ekki helgisiður í sama skilningi, en regluleg samkoma samfélagsins).
Í fyrri trúarbrögðum hafi helgisiðir oft orðið sífellt umfangsmeiri eftir fráfall stofnandans. Bahá’u’lláh og ‘Abdu’l‑Bahá lögðu hins vegar mikla áherslu á að varðveita einfaldleikann og koma í veg fyrir að sífellt fleiri trúarlegar venjur yrðu gerðar að skyldu. Þess vegna má segja að bahá’í trúin færi áhersluna frá táknrænum athöfnum yfir á daglegt andlegt líf: Bæn, íhugun, siðferðilega breytni, þjónustu við samfélagið og ræktun einingar meðal fólks. Helgisiðir eru því ekki taldir aðalfarvegur andlegs þroska heldur stuðningur við hann. Hér á eftir má sjá umfjöllun um tvær af þeim örfáu helgiathöfnum bahá’ía: Hjónavígslu og jarðarför.
ATHAFNIR OG ÁFANGAR LÍFSINS
Bahá’í hjónavígslur
Þar sem hjónaband er talið varanlegt og andlegt samband, leggja bahá’í kenningar áherslu á að hjónin kynnist vel áður en þau taka ákvörðun. Það felur í sér heiðarleika, samtal, sameiginleg markmið og að skilja persónuleika og gildismat hvors annars áður en ákvörðun er tekin. Þetta er bein skylda hjónaefnanna sjálfra samkvæmt ritum ‘Abdu'l-Bahá.
Áður en til bahá’í hjónavígslu getur komið þarf að uppfylla ákveðnar kröfur sem lesa má um á næstu síðu.


ATHAFNIR OG ÁFANGAR LÍFSINS
Bahá’í jarðarfarir
Þótt jarðarför sé oft sorgarstund er hún jafnframt tilefni til bænar og íhugunar um áframhaldandi ferð sálarinnar til Guðs. Enginn sérstakur embættismaður þarf að stjórna bahá’í athöfn enda eru engir prestar í trúnni. Fjölskylda, vinir eða fulltrúar andlegra ráða geta tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd hennar.
