Bahá’í jarðarfarir

„Sendiboði fagnaðar“ fyrir sálina

Bahá’í trúin lítur á dauðann sem ferð sálarinnar úr þessum heimi til annars veruleikastigs. Þótt jarðarför sé oft sorgarstund er hún jafnframt tilefni til bænar og íhugunar um áframhaldandi ferð sálarinnar til Guðs.
Einfaldleiki og virðing
Bahá’í jarðarfarir einkennast af einfaldleika, reisn og virðingu. Trúin hefur hvorki presta né aðra vígða trúarleiðtoga og því er enginn sérstakur embættismaður sem þarf að stjórna athöfninni. Fjölskylda, vinir eða fulltrúar andlegra ráða geta tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd hennar.

Athöfnin getur farið fram í kirkju, kapellu, útfararsal eða öðrum hentugum stað. Oft eru lesnir kaflar úr bahá’í ritunum, flutt tónlist og minningarorð eða persónulegar hugleiðingar um hinn látna.

Útfararbænin
Fyrir látinn bahá’ía, sem hefur náð 15 ára aldri, er lesin sérstök „útfararbæn“ áður en greftrun fer fram. Þetta er eina safnaðarbæn bahá’í trúarinnar. Ein manneskja les bænina upphátt meðan aðrir standa í hljóðri virðingu.

Þegar hinn látni er ekki bahá’íi er þessi skylda ekki fyrir hendi, en heimilt er að lesa aðrar bahá’í bænir eða texta ef það samræmist óskum fjölskyldunnar.

Greftrun en ekki líkbrennsla
Samkvæmt bahá’í lögum á að jarðsetja lík hins látna og líkbrennsla er ekki heimil fyrir bahá’ía.

Einnig er kveðið á um að líkið skuli grafa innan þess svæðis sem unnt er að flytja það á innan klukkustundar frá dánarstað, óháð ferðamáta og má miða við sveitarfélagamörk.

Samvinna við fjölskyldu og aðstandendur
Bahá’í trúin leggur áherslu á einingu og virðingu fyrir fjölskyldutengslum. Við skipulagningu útfarar er leitast við að taka tillit til óska nánustu aðstandenda og að skapa athöfn sem endurspeglar bæði trú hins látna og þær aðstæður sem fjölskyldan stendur frammi fyrir.

Þegar fjölskyldumeðlimir eða vinir eru af annarri trú eða án trúfélagsaðildar eru þeir velkomnir til þátttöku í athöfninni. Bahá’í jarðarför er fyrst og fremst stund til að heiðra líf hins látna, biðja fyrir sálu hans og veita þeim sem eftir lifa huggun og von.

Stuðningur bahá’í samfélagsins
Bahá’í samfélagið leitast við að styðja fjölskyldu hins látna bæði við undirbúning útfarar og á sorgartímanum. Hægt er að leita til andlegs svæðisráðs bahá’ía eða annarra fulltrúa samfélagsins eftir ráðgjöf um framkvæmd athafnarinnar og þær reglur sem gilda samkvæmt bahá’í trúnni.
Algengar spurningar

Má bahá’íi vera brenndur eftir andlát?
 Nei. Samkvæmt bahá’í lögum skal lík hins látna jarðsett en ekki brennt.

Þarf útförin að fara fram í bahá’í húsi eða sérstakri kapellu?
Nei. bahá’í trúin gerir engar sérstakar kröfur um staðsetningu útfararathafnarinnar. Mikilvægast er að athöfnin fari fram með reisn og virðingu.

Hver stjórnar bahá’í útför?
Bahá’í trúin hefur enga presta eða vígða trúarleiðtoga. Athöfninni getur verið stýrt af fjölskyldumeðlimi, vini, fulltrúa bahá’í samfélagsins eða útfararstjóra, eftir því sem hentar hverju sinni.

Mega aðstandendur af annarri trú taka þátt?
Já, bahá’í jarðarfarir eru opnar öllum og aðstandendum af annarri trú eða án trúfélagsaðildar er velkomið að taka þátt með þeim hætti sem þeim er eðlilegt.

Hvað er „útfararbænin“?
Útfararbænin er sérstök bæn sem lesin er fyrir látinn bahá’ía sem hefur náð 15 ára aldri. Ein manneskja les bænina upphátt meðan aðrir standa í hljóðri virðingu.

Má lesa aðra texta eða flytja tónlist við útförina?
 Já. Algengt er að lesnir séu valdir textar úr ritum bahá’í trúarinnar, flutt tónlist og flutt minningarorð um hinn látna. Trúin kveður ekki á um fasta eða einsleita dagskrá útfararathafna.

Hvað ef hinn látni var ekki bahá’íi en fjölskyldan óskar eftir bahá’í bænum eða textum?
 Það er almennt heimilt að lesa bahá’í bænir og texta að ósk fjölskyldunnar. Skyldubænin fyrir hina látnu er þó aðeins ætluð bahá’íum.

Hvert er hægt að leita eftir frekari upplýsingum?
 Hægt er að hafa samband við Bahá’í samfélagið á Íslandi eða næsta svæðisráð bahá’ía sem getur veitt leiðbeiningar um skipulagningu útfarar og þær reglur sem gilda samkvæmt bahá’í trúnni.
Leit