Bahá’í hjónavígslur
„Virki velfarnaðar“
Eðli hjónabandsins og kröfur sem þarf að uppfylla fyrir hjónavígslu
Bahá’í hjónaband er bæði andleg og líkamleg eining hjóna og er lýst sem „virki velfarnaðar og frelsunar“. Lögin um bahá’í hjónaband leggja áherslu á gagnkvæma virðingu, samstöðu og varanlega tengingu milli hjóna, sem samkvæmt kenningunum heldur áfram í gegnum allt lífið og „í öllum veröldum Guðs“.
Bahá’í kenningar leggja áherslu á að forsenda hjónabandsins sé einlægur vilji beggja aðila til að giftast, án utanaðkomandi þrýstings. Auk þess verða allir lifandi líffræðilegir foreldrar parsins að veita samþykki sitt fyrir hjónabandinu. Tilgangurinn er að skapa einingu milli fjölskyldna og stuðla að friði og samheldni, ekki bara milli hjónanna heldur einnig innan beggja stórfjölskyldnanna. Foreldrarnir mega þó ekki stýra vali barnsins — samþykkið snýr ekki að valinu á maka heldur er staðfesting á stuðningi fjölskyldunnar. Sambúð fyrir hjónaband er ekki leyfileg og í slíkum tilvikum getur par misst réttinn til að hljóta bahá’í hjónavígslu eftir því sem sambúðin varir lengur.
Þar sem hjónaband er talið varanlegt og andlegt samband, leggja bahá’í kenningar áherslu á að hjónin kynnist vel áður en þau taka ákvörðun. Það felur í sér heiðarleika, samtal, sameiginleg markmið og að skilja persónuleika og gildismat hvort annars áður en ákvörðun er tekin. Þetta er bein skylda hjónaefnanna sjálfra samkvæmt ritum ‘Abdu'l-Bahá.
Par sem hyggst gifta sig þarf að hafa samband við andlega ráðið á svæðinu þar sem giftingin fer fram. Bahá’í hjónavígslur þarf að framkvæma með formlegri heimild frá viðkomandi ráði. Hjónaefnin skipuleggja athöfnina en andlega ráðið staðfestir vitni og að samþykki foreldra liggi fyrir. Hjónavígslan verður að fara fram í viðurvist tveggja vitna sem andlega ráðið hefur samþykkt og þurfa þau ekki að vera bahá’íar. Sé annað hjónaefnanna ekki bahá’íi og eigi önnur hjónavígsla að fara fram líka, annað hvort borgaraleg eða í samræmi við reglur annarra trúarbragða, þurfa þær að fara fram innan 24 klukkustunda millibils og skal gera þeim jafn hátt undir höfði.
Að víkja frá þessum lögum getur leitt til þess að bahá’íi missi stjórnfarsrétt sinn innan bahá’í samfélagsins.
Auk þessa þarf að uppfylla atriði sem snúa að íslenskum landslögum sem forstöðumaður Bahá’í samfélagsins kemur að. Þetta embætti er Bahá’í samfélaginu gert að hafa samkvæmt íslenskum lögum en það er ekki hluti bahá’í stjórnskipulagsins. Til að hjónabandið sé löggilt skv. íslenskum lögum þarf að uppfylla tiltekin atriði. Forstöðumaðurinn sér um þann þátt og má segja það sé borgaraleg hjónavígsla.
Hvernig bahá’í hjónavígslan fer fram?
Bahá’í hjónavígslur eru mjög einfaldar. Í bahá’í trúnni eru hvorki prestar né embættismenn sem framkvæma giftinguna. Má segja að hjónin „gifti sig sjálf“ með því að fara með sérstakt hjónabandsheit og er það eina krafan til bahá’í hjónavígslna svo þær teljist fullgildar. Önnur atriði á borð við val á bænum og tónlist og allri umgjörð eru algjörlega á hendi hjónaefnanna. Versið sem fara á með í viðurvist vitna hljóðar svo:
Brúðgumi: „Vissulega munum við allir lúta vilja Guðs.“
Brúður: „Vissulega munum við allar lúta vilja Guðs.“
Andlega ráðið staðfestir að allar kröfur hafi verið uppfylltar, samþykkir vitnin og skráir hjónabandið samkvæmt reglum trúarinnar. Það getur einnig átt formlegt samtal við parið fyrir giftingu til að undirstrika helgi hjónabandsins og ábyrgðina sem fylgir því.
Forstöðumaður sér um að spyrja hjónaefnin út í vilja sinn til að giftast og sér um borgaralega staðfestingu vígslunnar svo hún öðlist lagalegt gildi samkvæmt landslögum. Sá þáttur þarf ekki að vera hluti hjónavígsluathafnarinnar.
Hjónabandið
Hjónabandið er hornsteinn samfélagsins. Bahá’íar eru hvattir til að hafa í huga að samband þeirra hefur áhrif ekki bara á þau sjálf heldur á samfélagið allt. Það byggist á gagnkvæmri virðingu, samþykki fjölskyldna, andlegum tengslum og siðferðilegri ábyrgð. Heitin eru einföld, athöfnin látlaus, og áherslan er öll á innra samband hjónanna og einingu milli fjölskyldna og samfélags.
Nánari leiðsögn um hjónabandið má finna í nýlegri samantekt sem ber heitið Skipan komið á heiminn og fæst á prenti í Bahá’í þjóðarmiðstöðinni. Hún er einnig aðgengileg í flettibókasafninu.
