Þróun heimssamfélags
Ekki er hægt að byggja upp þá heimssiðmenningu sem Bahá’u’lláh sá fyrir sér með dreifðu átaki einstaklinga, hversu helgaðir og velviljaðir sem þeir kunna að vera. Samfélag, sameinað í hugsun og verki, verður að verða til, vaxa og eflast stöðugt.
Heimssamfélagið
Ekki er hægt að byggja upp þá heimssiðmenningu sem Bahá’u’lláh sá fyrir sér með dreifðu átaki einstaklinga, hversu helgaðir og velviljaðir sem þeir kunna að vera. Samfélag, sameinað í hugsun og verki, verður að verða til, vaxa og eflast stöðugt.
Sérhver bahá’íi lítur á sjálfan sig samtímis sem meðlim svæðis-, þjóðar- og heimssamfélags bahá’ía. Allt er gert til að tryggja að á öllum þessum stigum haldist samfélögin þróttmikil og opin öllu fólki. Mikil áhersla er lögð á að forðast þá gryfju sem útilokun er. ‘Abdu’l‑Bahá ráðleggur okkur: „Lítið ekki á neina sem framandi, lítið heldur á alla menn sem vini, því erfitt er að finna ást og einingu ef þér festið sjónir á framandleika. … Því sérhver skepna er tákn Guðs, og það var fyrir náð Drottins og mátt hans sem hver og einn steig inn í heiminn. Því eru þeir ekki ókunnugir, heldur hluti af fjölskyldunni, ekki útlendingar, heldur vinir, og ber að koma fram við þá sem slíka.“
Bahá’í samfélagið varð til smám saman – frá þeim fáu sem fyrst heyrðu boðskap Bábsins, til hins ákafa hóps fylgjenda Bahá’u’lláh í borgum og þorpum um alla Persíu á nítjándu öld, og til alþjóðlegs samfélags milljóna í dag, með meðlimi á yfir 100.000 stöðum í nánast öllum löndum og landsvæðum um allan heim.
Álfuráðstefna í Ástralíu, með baháʼíum frá 19 löndum viðstöddum, mars 1958.
Bahá’í samfélagið á Íslandi
Bahá’í trúin var í fyrsta nefnd á prenti hér á landi árið 1908 og árið 1915 birti þjóðskáldið Matthías Jochumsson lofsamlega grein um trúna. Það var 9 árum síðar sem að erlendur bahá’íi kemur til landsins og kynnist Íslendingi sem síðar lýsti yfir trú sinni á Bahá’u’lláh. Eiginlegt bahá’í samfélag verður hins vegar ekki til hér á landi fyrr en 1965 þegar stofnað er fyrsta andlega svæðisráðið í Reykjavík og svo þjóðarráð árið 1972.
