Bahá’í samfélagið á Íslandi

 „Þess er ekki að miklast sem elskar ættjörð sína, heldur þess sem elskar heiminn“ 
– Bahá’u’lláh

„Kenningar hans [Bahá’u’lláh] eru að mörgu leyti svipaðar kenningum kristindómsins eins og mannúðlegast og göfugast er með þær farið.“ - Þórhallur Bjarnason, síðar biskup.
Þórhallur Bjarnason, síðar biskup, tók þannig til orða í grein sem birtist í Nýja Kirkjublaðinu, árið 1908: „Kenningar hans [Bahá’u’lláh] eru að mörgu leyti svipaðar kenningum kristindómsins eins og mannúðlegast og göfugast er með þær farið.“ Að því best er vitað eru þetta fyrstu ummælin um bahá’í trúna sem birtust á prenti hér á landi. Nokkru síðar eða á aðfangadag árið 1915 skrifaði Matthías Jochumsson grein um trúna í blaðið Íslending sem var afar lofsamleg (síða 1 og síða 2 úr greininni).

Fyrsti Íslendingurinn til að játa trúna
Árið 1924 kom til landsins bandarísk kona, Amelia Collins að nafni. Í stuttri heimsókn sinni kynntist hún Hólmfríði Árnadóttur, sem seinna lýsti yfir trú sinni á Bahá’u’lláh, fyrst allra Íslendinga. Hún þýddi og undirbjó útgáfu fyrstu bahá’í bókarinnar á íslensku: Bahá’u’lláh og nýi tíminn eftir John E. Esslemont. 

Þegar önnur bandarísk kona, Martha Root, kom til landsins árið 1936 í þeim tilgangi að kynna  bahá’í málstaðinn var Hólmfríður hennar stoð og stytta. Þá var trúin boðuð opinberlega í fyrsta sinn hérlendis á opinberum fundum og í fjölmiðlum, bæði útvarpi og blöðum.
Andlegt þjóðarráð bahá’ía kosið í fyrsta sinn á Íslandi
Í tíu ára alþjóðlegri kennsluáætlun fékk bahá’í samfélagið í Kanada það verkefni að sjá um þróun trúarinnar á Íslandi. Árið 1958 kom fyrsti kanadíski brautryðjandinn, Margaret Allmann, til landsins og settist hér að. Fleiri fylgdu á eftir. Þetta hafði það í för með sér að hægt var að stofna andlegt svæðisráð í Reykjavík árið 1965.

Árið 1971 voru stofnuð þrjú andleg ráð til viðbótar; í Kópavogi, Hafnarfirði og Keflavík. Í framhaldi af því var hægt að kjósa í fyrsta sinn til Andlegs þjóðarráðs bahá’ía á Íslandi, árið 1972. Á Íslandi eru nú fimm andleg svæðisráð starfandi: á Akureyri, í Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ og Reykjavík. Átrúendurnir eru um 300.

Fyrsta bókin um trúna eftir Íslending
Talsvert hefur verið gefið út af bahá’í helgiritum eða kynningarritum um trúna á íslensku. Bahá’u’lláh, líf Hans og opinberun eftir Eðvarð T. Jónsson, sem kom út árið 1982, er fyrsta bókin um trúna eftir íslenskan höfund.
Alþjóðlegt samstarf
Árið 1973 tók Andlegt þjóðarráð bahá’ía á Íslandi í fyrsta sinn þátt í kosningu til Allsherjarhúss réttvísinnar, æðstu stjórnstofnunar bahá’í heimsins. Ári síðar hófst fimm ára áætlun um útbreiðslu bahá’í trúarinnar. Í henni fékk íslenska bahá’í samfélagið meðal annars það verkefni að sjá um þróun trúarinnar í Færeyjum. Á þessum tíma fóru margir íslenskir brautryðjendur til Færeyja til að styrkja og efla bahá’í samfélagið þar. Auk þess hafa bahá’íar tekið þátt í uppbyggingu trúarinnar á Grænlandi.

Samstarf innanlands
Bahá’í samfélagið er stofnmeðlimur í Samráðsvettvangi trúfélaga og lífsskoðunarfélaga og hefur unnið með vettvanginum að málþingum og viðburðum af ýmsu tagi. Það tók einnig þátt í skipulagningu ráðstefnunnar Faith for Nature ásamt Félagi Sameinuðu þjóðanna, Þjóðkirkjunni, Landgræðslunni og UN Environment Programme árið 2020.
Eignir
Bahá’í þjóðarmiðstöð er staðsett að Kletthálsi 1 í Reykjavík. Auk þess á samfélagið land undir bahá’í tilbeiðsluhús að Kistufelli í Kollafirði og jörðina Skóga í Þorskafirði [hlekkur á síðuna um Skóga], sem það erfði eftir Jochum Eggertsson skáld og rithöfund en þar er unnið að Skógrækt í samstarfi við Land og Skóg. Einnig á samfélagið Helludal í Bláskógabyggð sem það erfði af Svönu Einarsdóttur sem var einn af fyrstu bahá’íum hér á landi og stofnmeðlimur þjóðarráðsins.
Myndir á þessari síðu:
Bahaipedia.org
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Leit