Lagt á andlega braut

Ábyrgð einstaklingsins

Kenningar bahá’í trúarinnar leggja áherslu á að hver og einn beri ábyrgð á eigin andlega þroska. Þótt stofnanir séu til staðar til að leiðbeina og losa um krafta til aðgerða og samfélagslíf bahá’ía eigi að einkennast af andrúmslofti einlægs samráðs og hvatningar, þá hvílir ábyrgðin á andlegum vexti að endingu á hverjum og einum einstaklingi. Í bahá’í trúnni er engin klerkastétt. Bahá’í samfélaginu verður hvorki lýst sem söfnuði með presti né sem hópi trúaðra undir forystu lærðra einstaklinga með vald til að túlka ritningarnar.
Hreyfiafl þess að feta andlega braut er viðfangsefni sem bahá’íar kanna stöðugt í starfi sínu og samráði, bæði sem einstaklingar og sameiginlega. Ákveðnir þættir þess eru skýrir: Að einblína eingöngu á sjálfan sig hefur öfug áhrif, brautinni skal fylgt í félagsskap annarra – þar sem hver og einn gefur og þiggur kærleika, aðstoð og hvatningu og spornar meðvitað gegn tilhneigingunni til að láta sjálfbirgingshátt ná tökum á sér og gerir sér grein fyrir að auðmýkt er forsenda framfara.

Engin sál sem fetar þessa andlegu braut getur talið sig vera orðna fullkomna. Samt sem áður er þeirri tegund afstæðishyggju sem fordæmir fylgni við skýrt fram settar hugsjónir og meginreglur hafnað. Sérhver bahá’íi er beðinn um að leggja sig daglega fram um að endurspegla í auknum mæli í hegðun sinni þá mælikvarða sem Bahá’u’lláh lýsir, hversu erfitt sem kann að virðast að uppfylla þá.
Mun ítarlegri útskýringu á kenningum trúarinnar um þetta málefni, þar á meðal greinar um mannssálina, bæn, íhugun og þroska andlegra eiginleika, má finna í kaflanum „Líf andans“ í vefhlutanum „Hverju trúa bahá’íar“ á þessum vef.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Leit