Líf andans
„Þótt þú fengir ekki í þinn hlut nema örsmáan dropa úr kristaltærum vötnum guðlegrar þekkingar, myndir þú án efa skilja að hið sanna líf er ekki líf holdsins heldur líf andans ... “
–Bahá’u’lláh
–Bahá’u’lláh

Mannssálin
Sérhver manneskja hefur ódauðlega, viti borna sál sem fer um þennan heim í stuttan tíma og heldur áfram að eilífu að þróast í átt að Guði. Tilgangur lífs okkar er að þróast andlega með því að þjóna meðbræðrum okkar. Með því að gera það öðlumst ræktum við þá guðlegu eiginleika sem við munum þurfa í komandi lífi.

Helgun
Trúarlegar athafnir eins og bæn, hugleiðsla, föstur, pílagrímsferðir og þjónusta við aðra eru eðlislægar trúarlífinu. Með þeim geta einstaklingar og samfélög stöðugt styrkt það einstaka samband sem er milli Guðs og mannkyns.

Líf örlætis og gjafmildi
Rétt eins og kerti hefur það hlutverk að veita ljós, var mannssálin sköpuð til að gefa örlátlega. Við uppfyllum okkar æðsta tilgang í þjónustulífi þar sem við, með auðmýkt og sjálfleysi, bjóðum fram tíma okkar, orku, þekkingu og fjármuni.

Skaphöfn og breytni
Að rækta andlega eiginleika í þessum heimi er ekki hægt nema með því að bæta hegðun okkar þar sem gerðir okkar endurspegla í auknum mæli göfgi sem hver manneskja er gædd og heiðarleika sem hvert og eitt okkar býr yfir. Slíkir andlegir eiginleikar eru ekki fengnir með því að einbeita sér að sjálfum sér; þeir eru þróaðir í þjónustu við aðra.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
