Líf örlætis og gjafmildi
Á sama hátt og það er tilgangur kertis að stafa frá sér ljósi var sálin sköpuð til að gefa af örlæti. Við uppfyllum hæsta tilgang lífs okkar með lífi þjónustu þar sem við bjóðum fram tíma okkar, orku, þekkingu og fjármuni.
Hreyfiafl alls þessa er knúið af ást okkar til Guðs. Eftir því sem þessi ást fyllir hjörtu okkar byrjar örlæti að einkenna hegðunarmynstur okkar. Þegar við þjónum öðrum vegna ástar á Guði erum við hvorki að sækjast eftir viðurkenningu né verðlaunum og við gerum það ekki heldur af ótta við refsingu. Líf þjónustu felur í sér auðmýkt og sjálfleysi, ekki eiginhagsmuni eða sýndarmennsku.
Shoghi Effendi ritaði: „Við verðum að vera eins og gosbrunnur eða uppspretta sem sífellt tæmir sjálfa sig af öllu sem hún á og er sífellt fyllt á ný frá ósýnilegri uppsprettu. Að vera sífellt að gefa af sér til hagsbóta fyrir félaga okkar hvergi bangin af ótta við fátækt og reiða sig á óbrigðult örlæti frá uppsprettu alls ríkidæmis og alls góðs – þetta er leyndardómur réttra lífshátta.“

Örlátt eðli okkar
Rétt eins og tilgangur kerta er að veita birtu var sál mannsins sköpuð til að gefa af örlæti.

Bahá’í sjóðir
Í þeim heimi sem Bahá’u’lláh sér fyrir sér verða auðlindir jarðarinnar nýttar til að skapa andlega og efnislega velmegun fyrir allt mannkyn.

Bahá’í trúaratriðum deilt með öðrum
Það er eðlilegt að bahá’íar vilji deila trúarskoðunum sínum með öðrum og ef einhver finnur trúarneistann í hjarta sínu er hann velkominn.

