Bahá’í trúaratriðum deilt með öðrum

 „Allt sem er á himnum og á jörðu hefi Ég fyrirbúið þér nema mannshjartað sem Ég hefi gert að samastað fegurðar Minnar og dýrðar“

 –Bahá’u’lláh

Algengar hugmyndir um orð eins og „trúskipti“ á ekki við

Eftir því sem tíminn líður uppgötva æ fleiri í kenningum Bahá’u’lláh sannfærandi sýn á betri heim og uppsprettu djúprar innsýnar í þær meginreglur sem verða að leiða viðleitni til að hrinda henni í framkvæmd. Margir ákveða að ganga lengra og kanna bahá’í trúna sem trúarbrögð. Þannig kanna þeir skýringar hennar á málum sem tengjast mannlegu eðli, lýsingu hennar á því hvernig Guð leiðir mannkynið, staðhæfingar hennar um tilgang lífsins á þessu tilverustigi og um eðli lífsins eftir dauðann, og fyrirmæli hennar sem tengjast bænalífi einstaklinga og samfélags. Og auðvitað kynna þeir sér einnig helgirit hennar og lög, og þær meginreglur og reglur sem gilda um stjórn hennar. Meðtaka þessara og svipaðra þátta opnar þeim leið til að taka þátt í lifandi samfélagslífi sem er helgað því að gera kenningar Bahá’u’lláh að veruleika.

Það er eðlilegt að bahá’íar vilji deila trúarskoðunum sínum með öðrum og ef einhver finnur trúarneistann í hjarta sínu er hann velkominn – reyndar er honum boðið – að verða virkur meðlimur í bahá’í samfélaginu og stuðla að áframhaldandi vexti þess og lífskrafti. Hins vegar eiga algengar hugmyndir um orð eins og „trúskipti“ ekki við um þetta ferli og ágengt trúboð er bannað í bahá’í trúnni.

Ekki tilraun til að sannfæra einhvern eða sanna ákveðin atriði

Í þessu ljósi, þegar bahá’íi deilir trúarskoðunum sínum með öðrum, er það ekki tilraun til að sannfæra viðkomandi eða sanna ákveðið atriði. Það er tjáning á einlægri ósk um að taka þátt í innihaldsríku samtali um grundvallaratriði tilverunnar, að leita sannleikans og að eyða misskilningi. „Ef þér kunnið skil á tilteknum sannindum,“ sagði Bahá’u’lláh, „ef þér eigið í fórum yðar gersemi sem aðrir hafa farið á mis við, veitið þeim hlutdeild í henni með innilegri góðvild og vináttuorðum. Sé henni veitt viðtaka, þjóni hún hlutverki sínu, er tilgangi yðar náð. Hafni einhver henni, látið hann þá einan og biðjið Guð að leiðbeina honum.“1

Tjáning trúar ein og sér er þó ekki nægjanleg til að byggja betri heim – markvissar aðgerðir eru einnig nauðsynlegar. Bahá’u’lláh skrifar: „Sérhverjum manni sem hefur til að bera innsæi og skilning ber að sýna í framkvæmd og verki það sem ritað hefur verið.“2 Þess vegna leitast bahá’íar við að taka fullan þátt í lífi samfélagsins og vinna hlið við hlið með fjölbreyttum hópum í margvíslegum aðstæðum til að stuðla að félagslegri, efnislegri og andlegri framþróun siðmenningarinnar. Hvaða mynd sem þessi viðleitni tekur, þá er þátttaka bahá’ía knúin áfram af umhyggju fyrir almannaheill og anda óeigingjarnrar og auðmjúkrar þjónustu við mannkynið.

Tilvitnanir

1  Bahá’u’lláh, Úrval úr ritum Bahá’u’lláh, nr. 132.
2  Bahá’u’lláh, Töflur Bahá’u’lláh eftir Aqdas, Lawh-i-Maqsúd.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Leit