Bahá’í sjóðir
Í þeim heimi sem Bahá’u’lláh sér fyrir sér verða auðlindir jarðarinnar nýttar til að skapa andlega og efnislega velmegun fyrir allt mannkyn. Shoghi Effendi hefur skrifað að „framfarir og framkvæmd andlegra athafna“ séu „háðar efnislegum úrræðum“.
Sjóðir á þremur stigum
Innan bahá’í samfélagsins eru sjóðir stofnaðir á svæðis-, þjóðar- og álfustigi, sem og alþjóðlega. Aðeins meðlimir samfélagsins mega gefa til þessara sjóða. Þetta gerir bahá’í samfélaginu hvort tveggja í senn kleift að viðhalda starfsemi sinni og beina fjármagni þangað sem það stuðlar að velferð mannkyns.
Umsjón þessara sjóða er falin bahá’í stofnunum á hverju stigi sem bera ábyrgð á að taka ákvarðanir um úthlutun fjármuna fyrir hönd samfélagsins. Það að inna af hendi framlag veitir gefandanum að sjálfsögðu ekki rétt til að stýra því hvernig fjármunum er varið, þótt sérhver bahá’íi geti sérmerkt framlag sitt til tiltekins landsvæðis eða ákveðins starfssviðs sem stofnanirnar geta ráðstafað að vild.
Einstakir bahá’íar leitast við að gefa af sjálfleysi og með gleði til hinna ýmsu sjóða trúarinnar, hver og einn í samræmi við aðstæður og efnahag. Framlög eru einkamál og sjálfboðin og ekki er leyfilegt að falast eftir peningum frá einstaklingum. Hins vegar getur staða bahá’í sjóðanna vel verið umræðuefni meðal meðlima bahá’í samfélagsins á samkomum af ýmsu tagi.
„Við verðum að vera eins og gosbrunnur ...“
Það er vissulega svo, að fórnfúst framlag auðugs einstaklings er mun hærra en framlag þess sem hefur takmörkuð fjárráð. Samt sem áður segir í bahá’í ritunum að í augum Guðs sé sérhver upphæð sem gefin er af fórnfýsi þóknanleg. Þegar framlög eru gefin af sjálfleysi skín í gegn grundvallarsannleikurinn sem liggur að baki meginreglunni um örlæti – að gefandinn er einnig þiggjandi náðar: „Við verðum að vera eins og gosbrunnur eða uppspretta sem sífellt tæmir sjálfa sig af öllu sem hún á og er sífellt fyllt á ný frá ósýnilegri uppsprettu. Að vera sífellt að gefa af sér til hagsbóta fyrir félaga okkar, hvergi bangin af ótta við fátækt og reiða sig á óbrigðult örlæti frá uppsprettu alls ríkidæmis og alls góðs – þetta er leyndardómur réttra lífshátta.“1
Hér á landi greiðir íslenska ríkið sóknargjöld til skráðra trúfélaga fyrir hvern einstakling sem er 16 ára eða eldri og er skráður í viðkomandi trúfélag hjá Þjóðskrá. Bahá’í samfélagið þiggur sóknargjöldin en reynir á móti að tryggja að skrá Þjóðskrár sé í sem mestu samræmi við eigin samfélagsskrá og upplýsir viðkomandi einstaklinga sé misræmi á skráningum þeirra.
Tilvitnanir
1 Shoghi Effendi, Bahá’í News, no. 13, September 1926.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
