„Gjafmildi og örlæti eru eigindir Mínar. Heill þeim sem skrýðir sig dyggðum Mínum“.1

Rétt eins og tilgangur kerta er að veita birtu var sál mannsins sköpuð til að gefa af örlæti. Við uppfyllum æðsta tilgang okkar með því að lifa lífi í þjónustu, þar sem við gefum af tíma okkar, orku, þekkingu og fjármunum. „…þér verðið að bera góða og undursamlega ávöxtu, svo að þér sjálfir og aðrir megi hagnast af því.“2

‘Abdu’l-Bahá hefur skrifað: „…heiður og ágæti einstaklingsins felst í því að hann, einn af öllum heimsins fjölda, verði uppspretta samfélagslegs góðs.“3 Að sjálfsögðu er það áskorunum háð að leitast við að þjóna mannkyninu og að lifa slíku þjónustulífi felur í sér að maður verður stundum að vera fús til að þola erfiðleika. Samt er það ekki tilefni til sorgar að fórna sér á þennan hátt, heldur er það gleðigjafi – það felur í sér að sætta sig við óþægindi fyrir velferð og hamingju annarra, að afsala sér því sem er lægra fyrir það sem er hærra. Eins og ‘Abdu’l-Bahá hefur sagt, gerir það að „deyja sjálfum sér“ kleift að „ljómi hins lifandi Guðs“ geti „skinið fram“.4

Hvatinn til að gefa sprettur af ást til Guðs. Þegar þessi ást fyllir hjörtu okkar, verður örlæti einkennandi fyrir hegðunarmynstur okkar; þegar við þjónum öðrum af ást til Guðs, er hvatinn að baki því hvorki vonin um viðurkenningu og umbun né ótti við refsingu. Líf í þjónustu við mannkynið felur í sér auðmýkt og sjálfleysi, ekki eiginhagsmuni og sýndarmennsku. „Veit mér náð Þína til að þjóna ástvinum Þínum,“ segir í vel þekktri bæn eftir ‘Abdu’l-Bahá, „Gef mér að drekka af bikar sjálfleysis, íklæð mig kyrtli þess og sökk mér í úthaf þess. Ger mig sem dustið á vegi ástvina Þinna…“.5
 Bahá’u’lláh ráðleggur okkur með eftirfarandi orðum: 

„Ver örlátur í velgengni og þakklátur í mótlæti. Ver verðugur trausts náunga þíns og lít á hann með björtu og vingjarnlegu andliti. Ver fjársjóður hinum snauðu, áminning hinum ríku, svar við hrópi hins þurfandi; varðveit helgi heits þíns. Ver réttlátur í dómum þínum og varkár í máli þínu. Beit engan rangindum og sýn öllum mönnum auðmýkt. Ver lampi þeim sem í myrkrinu ganga, fögnuður hinum syrgjandi, haf hinum þyrstu, vin hinum hryggu, verjandi og skjól fórnarlambi kúgunar. Lát heiðarleik og trúmennsku einkenna allar gerðir þínar. Ver hæli hinum ókunna, smyrsl þeim er þjáist, óvinnandi virki flóttamanninum. Ver augu hinum blinda og leiðarljós þeim sem fer villur vegar. Ver djásn á ásýnd sannleikans, kóróna á enni trúmennskunnar, stólpi musteri réttlætisins, lífsandi líkama mannkynsins, tákn herskara réttvísinnar, skínandi hnöttur yfir sjónbaug dyggðarinnar, dögg jarðvegi mannshjartans, örk á hafi þekkingarinnar, sól á himni örlætisins, gimsteinn í festi viskunnar, skínandi ljós á festingu kynslóðar þinnar, ávöxtur á tré auðmýktarinnar.“6

Tilvitnanir

1 Bahá’u’lláh, Hulin orð, úr persnesku, nr. 49.
2 Bahá’u’lláh, Hulin orð, úr persnesku, nr. 80.
3 ‘Abdu’l‑Bahá, The Secret of Divine Civilization.
4 ‘Abdu’l‑Bahá, Selections from the Writings of ‘Abdu’l‑Bahá.
5 Bahá’í bænir, Vitjunartafla ‘Abdu’l‑Bahá.
6 Bahá’u’lláh, Úrval úr ritum Bahá’u’lláh, tilvitnun nr. 130.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Leit