„Ó, mannssonur! Þú ert ríki mitt og ríki mitt gengur ekki á grunn, því óttast þú tortímingu? Þú ert ljós mitt og ljós mitt slokknar aldrei, því óttast þú útslokknun? Þú ert dýrð mín og dýrð mín fölnar ekki, þú ert kyrtill minn og kyrtill minn mun aldrei slitna. Þrey því í ást þinni á mér, svo að þú megir finna mig í dýrðarheimum.“ 

–Bahá’u’lláh
 Það sem skilgreinir kjarna sérhverrar mannveru er hin viti borna og ódauðlega sál „sem er fullkomlega frábrugðin efnislegri sköpun.“ Bahá’u’lláh notar líkinguna um sólina til að útskýra tengsl sálarinnar við líkamann: „Líta ætti á sál mannsins eins og sólina sem lýsir upp líkama hans og nærir hann.“ 

Það er með því að beita kröftum sálarinnar sem mannlegar framfarir verða. ‘Abdu’l‑Bahá hefur sagt að sálin geti „uppgötvað veruleika hlutanna, skilið eiginleika þeirra og afhjúpað leyndardóma tilverunnar. Öll vísindi, lærdómsgreinar, listir, uppfinningar, stofnanir, verkefni og uppgötvanir eiga rætur sínar að rekja til skilnings skynigæddrar sálar.“
Einnig má nota aðra líkingu til að skilja betur eðli sálarinnar að því marki sem okkur er unnt. Fóstur í móðurkviði þróar með sér ýmis líffæri sem það þarf ekki á að halda þar, en eru ómissandi í þessu lífi. Á sama hátt þarf maðurinn að þroska sál sína til að undirbúa sig fyrir næstu tilveru. Það gerir hann með því að rækta með sér í þessu lífi dyggðir eins og kærleika, réttlæti, umburðarlyndi og ást. 

Í bókinni Hulin orð, sem Bahá'u'lláh opinberaði, ávarpar Guð mannfólkið:

 „Ó, VERUNDARSONUR! Statt sjálfum þér reikningsskap á hverjum degi áður en þú verður krafinn skilagreinar, því að fyrirvaralaust mun dauðinn koma til þín og þú verður kallaður til að standa reikningsskil gerða þinna.“
Þegar lífinu lýkur hverfur líkaminn aftur til jarðarinnar, en sálin til Guðs. 

Bahá’u’lláh staðhæfir: „Vita skalt þú í sannleika, að sálin heldur áfram að þróast eftir viðskilnaðinn við líkamann uns hún kemst í návist Guðs í þess konar ástandi og ásigkomulagi að hvorki framrás alda og árþúsunda né breytingar og umskipti þessa heims geta náð til hennar. Hún varir jafn lengi og ríki Guðs, yfirráð hans, vald og herradómur er við lýði.“ 

Það er því engin ástæða til að óttast dauðann. Hann ætti frekar að vera tilhlökkunarefni, ef maður leitast við að lifa göfugu lífi.
„Ó SONUR HINS ÆÐSTA! Ég hef gert dauðann að sendiboða fagnaðar til þín. Því ert þú dapur? Ég hefi úthellt yfir þig dýrð ljóssins. Því hylur þú ásjónu þína?“ 

Við getum endurspeglað guðdómlegar eigindir að því marki sem við hreinsum spegla hjartna okkar og huga með því að biðja, stúdera hin helgu rit og leitast við að beita meginreglunum sem þar er að finna, afla okkur þekkingar, leitast við að bæta hegðun okkar og sigrast á prófraunum og erfiðleikum, og að þjóna mannkyni. 

Þegar dauðann ber að höndum í þessum heimi er sálin aðskilin líkamanum og heldur áfram að þróast í eilífri ferð í átt að fullkomnun.    


Leit