Skaphöfn og breytni
Þungamiðjan í andlegu lífi er þroski andlegra eiginleika sem hjálpa hverju okkar á eilífri vegferð til Guðs. Í þessum heimi er ræktun slíkra eiginleika órjúfanlega tengd stöðugri fágun á hegðun okkar, þar sem gjörðir okkar endurspegla í vaxandi mæli það göfuglyndi og þá ráðvendni sem býr í hverri mannveru. ‘Abdu’l-Bahá segir:
„Við verðum að leggja okkur fram, án afláts og án hvíldar, við að þroska andlegt eðli í manninum og kappkosta með óþreytandi ákafa að efla mannkynið í átt að göfgi hinnar sönnu og fyrirhuguðu stöðu þess.“1
Andlegir eiginleikar þroskast í samspili vaxandi kærleika og þekkingar, og í samræmi við guðlegt lögmál. Þegar við leyfum þekkingu á Guði að aukast í huga okkar og hjarta, taka eiginleikar okkar æðra eðlis að blómstra. Með sífellt meiri skýrleika greinum við á milli þess sem stuðlar að göfgi og þess sem leiðir til niðurlægingar, og við eflumst í skilningi okkar á efnisheiminum, mannverunni, samfélaginu og lífi andans. Kærleikur vex með þekkingu og sannur skilningur eflist af kærleika. Forðast ber falska tvígreiningu milli hjarta og huga.
Margir þættir stuðla að þessum þroska, þar á meðal bæn, íhugun, vilji til að læra og stöðugt daglegt átak – sérstaklega í þjónustu við mannkynið. Í viðleitninni til að lifa andlegu lífi getur of mikil áhersla á sjálfan sig haft öfug áhrif. Bahá’u’lláh skrifar að við ættum að beina hugsunum okkar að því sem „helgar hjörtu og sálir manna.“ „Því verður best til leiðar komið,“ heldur Hann áfram, „með hreinum og heilögum gerðum, með dyggðugu lífi og göfugu framferði.“2 ‘Abdu’l-Bahá hefur skrifað: „Hversu ágætur og heiðvirður er ekki sá sem hefst handa um að uppfylla þá ábyrgð sem honum er lögð á herðar og hve vesæll og fyrirlitlegur er ekki sá sem lokar augunum fyrir samfélagslegri velferð og eyðir dýrmætu lífi sínu í eftirsókn eiginhagsmuna og persónulegs ávinnings.“3
Við getum litið á viðleitni okkar til að þroska andlega eiginleika sem auðmjúka göngu með Drottni, þar sem við sýnum þrautseigju og lærum á vegferðinni, laus við sektarkennd, viðurkennum að mistök séu óumflýjanleg, en missum aldrei sjónar á þeim möguleikum sem í okkur búa. Þótt erfiðleikar og áföll séu óhjákvæmileg, er þetta gleðileg vegferð, full af hamingju.
Með því hættulegasta í þessu ævilanga ferli, í þessari stigvaxandi fágun á skapgerð, eru siðferðileg sjálfumgleði, yfirlæti og stolt – eiginleikar sem afskræma allt hið andlega verkefni og grafa undan grundvelli þess. Bahá’u’lláh hefur skrifað:
„Ó, mannanna börn! Vitið þér eigi hvers vegna Vér sköpuðum yður öll af sama dufti? Til þess að enginn skyldi upphefja sig yfir annan. Íhugið ávallt í hjörtum yðar hvernig þér voruð sköpuð. Þar sem Vér höfum skapað yður öll úr einu efni ber yður skylda til að vera sem ein sál, ganga með sömu fótum, eta með sama munni og dvelja í sama landi, svo að frá innsta grunni verundar yðar, með verkum yðar og gerðum, megi tákn einingarinnar og kjarni andlegrar lausnar verða opinberuð. Þetta er ráð Mitt til yðar, ó herskari ljóssins. Gætið þessa ráðs svo að þér megið uppskera ávöxt heilagleikans af tré undursamlegrar dýrðar.“4
Tilvitnanir
1 ‘Abdu’l‑Bahá, Promulgation of Universal Peace, kafli 24.
2 Bahá’u’lláh, Tablets of Bahá’u’lláh, Lawh-i-Dunya.
2 Bahá’u’lláh, Tablets of Bahá’u’lláh, Lawh-i-Dunya.
3 ‘Abdu’l‑Bahá, The Secret of Divine Civilization.
4 Bahá’u’lláh, Hulin orð, nr. 68 úr arabísku.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
