Helgun
„Komið saman í hinni mestu gleði og vináttu og lesið versin sem miskunnsamur Drottinn hefur opinberað. Þá munu dyr sannrar þekkingar opnast innri verund yðar og þér finna að sálir yðar hljóta staðfestu og að hjörtu yðar fyllast geislandi fögnuði.“
–Bahá’u’lláh.
–Bahá’u’lláh.
Helgihald og helgiathafnir eru óaðskiljanlegur þáttur í trúarlegu lífi. Með þeim styrkja einstaklingar og samfélög sífellt böndin milli Guðs og mannkyns. Sú tenging gefur þeim tengslum sem liggja til grundvallar þjóðfélaginu líf – þ.e. milli einstaklinga og mismunandi þátta samfélagsins og stofnana þess.
Bænin er bráðnauðsynleg fyrir okkur sem andleg næring og fyrir andlegan vöxt okkar. Í gegnum hana lofum við Guð og tjáum ást okkar til hans um leið og við biðjum um aðstoð hans. Geta mannsins til að hugleiða er einkennandi þáttur í lífi hans. Bahá’í ritin gefa til kynna að mannlegar framfarir væru ómögulegar án hugleiðslu og íhugunar. Fasta og pílagrímsferðir eru aðrar tegundir persónulegs helgihalds sem hafa leikið mikilvægt hlutverk í trúarlegu lífi í gegnum mannkynssöguna. Vinnu má líka líta á sem tilbeiðslu sé hún unnin í anda þjónustu.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
