Fjölskyldulíf og börn

Fjölskyldan er kjarni mannlegs samfélags. Hún er mikilvægur vettvangur fyrir þroska lofsverðra eiginleika og hæfni. Með samstilltri starfsemi sinni og með því að rækta kærleiksböndin sem tengja meðlimi hennar saman er hún stöðug tjáning þess sannleika að velferð einstaklingsins er órjúfanlega tengd framförum og velferð annarra. 

Grundvallarhlutverk fjölskyldunnar er að ala upp börn sem geta tekið ábyrgð, bæði á eigin andlega vexti og þátttöku sinni í framþróun siðmenningar. ‘Abdu’l-Bahá segir að feðrum og mæðrum sé „gert að skyldu að reyna af öllum mætti að þjálfa dætur sínar og syni“ og bahá’í foreldrar, sem bera meginábyrgð á uppeldi barna sinna, eiga ætíð að hafa þessa skyldu sína í huga. En menntun barna er ekki aðeins á ábyrgð foreldranna. Samfélagið hefur einnig mikilvægu hlutverki að gegna og bahá’í samfélagið veitir þessu málefni töluverða athygli. Reyndar eru námskeið, opin öllum, í andlegri og siðferðilegri menntun barna yfirleitt meðal fyrstu verkefna sem bahá’íar taka sér fyrir hendur á hverjum stað.
Frá fjölskyldusamveru í vesturbæ Reykjavíkur.
Expressions of Equality in the Family – mynd um það hvernig meginreglan um jafnrétti kvenna og karla er að endurmóta lífsmynstur fjölskyldna í Nýju-Delí á Indlandi.
Leit