Þátttaka í lífi þjóðfélagsins

Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, situr við enda borðs þar sem fulltrúar trúfélaga landsins eru saman komnir, 8. september 2015 í Edinborg. Fulltrúi bahá'ía, Jeremy Fox, situr fremst til vinstri.
Þátttakendur í sumarmóti bahá'ía gróðursetja tré í Skógum í Þorskafirði í júlí 2024.

Tvö tengd svið

 Bahá’u’lláh beindi eftirfarandi orðum að fylgjendum sínum: „Sinnið heilshugar þörfum þeirra tíma sem þér lifið á og beinið athygli yðar að brýnum kröfum hennar og úrlausnarefnum.“ 

Þannig leitast bahá’íar um allan heim – bæði sem einstaklingar og sameiginlega – við að taka þátt í lífi þjóðfélagsins og vinna hlið við hlið með fjölbreyttum hópum að því að stuðla að framförum efnislegrar og andlegrar siðmenningar. 

Hér er fjallað um tvö svið sem vinna saman. Samfélagsaðgerðir lýsa margvíslegri starfsemi, oft á grasrótarstigi, sem hefur það að markmiði að stuðla að efnislegri og félagslegri velferð samfélagsins í heild. Nátengt þessu er framlag bahá’ía til almannaheilla á sviði hugsunar með þátttöku í þjóðfélagsumræðu. Meðal einstakra meðlima bahá’í samfélagsins felur þetta yfirleitt í sér að deila hugmyndum sem eru innblásnar af kenningum bahá’í trúarinnar á margs konar félagslegum vettvangi. Andleg þjóðarráð samræma viðleitni bahá’ía til að leggja sitt af mörkum til umræðna sem snúa að ýmsum þáttum félagslegra framfara, en á alþjóðavettvangi er Alþjóðlega bahá’í samfélagið þátttakandi í ýmsum alþjóðlegum tengslanetum sem fást við málefni á borð við jafnrétti kvenna og karla og sjálfbæra þróun.

Samfélagsaðgerðir

 Bahá’í viðleitni til félagslegra aðgerða miðar að því að stuðla að félagslegri og efnislegri velferð fólks af öllum þjóðfélagsstigum, óháð trú eða bakgrunni.

Þátttaka í þjóðfélagsumræðu

Í áranna rás hefur bahá’í samfélagið farið að vísa til eins þáttar í viðleitni sinni til að stuðla að framförum siðmenningar sem þátttöku í þjóðfélagsumræðu.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Leit