Samfélagsaðgerðir
Bahá’í viðleitni til félagslegra aðgerða miðar að því að stuðla að félagslegri og efnislegri velferð fólks af öllum þjóðfélagsstigum, óháð trú eða bakgrunni. Slík viðleitni er sprottin af löngun til að þjóna mannkyninu og stuðla að uppbyggilegum félagslegum breytingum. Saman endurspegla þær vaxandi lærdómsferli sem snýst um að beita kenningum Bahá’u’lláh á félagslegan veruleika ásamt þekkingu sem safnast hefur á ólíkum sviðum mannlegrar viðleitni.
Kennslustund fyrir börn í CORDE námsmiðstöðinni sem stofnuð var af kambódísku samtökunum um rannsóknir, þróun og menntun (Cambodian Organization for Research, Development and Education), samtökum í Battambang í Kambódíu sem starfa í bahá’í anda og leggja áherslu á menntun.
Viðfangsefni félagslegrar og efnahagslegrar þróunar geta verið margbrotin og viðleitni bahá’ía til að taka þátt í félagslegum aðgerðum er tiltölulega smá í sniðum í samhengi við þau. Starf á þessu sviði er yfirleitt unnið af litlum hópum fólks á tilteknu svæði þar sem námskeið þjálfunarstofnunarinnar eru víða í boði. Viðleitnin sprettur upp úr vaxandi sameiginlegri vitund. Flest slík verkefni standa yfir í afmarkaðan tíma og þeim lýkur þegar markmiðum þeirra hefur verið náð. Þau geta tengst ýmsum sviðum, til dæmis heilbrigði, hreinlæti, menntun, landbúnaði eða umhverfisvernd. Hvert sem eðli þeirra er, miða þau að því að bæta einhvern þátt í lífi íbúa á staðnum. Í fáeinum tilvikum geta þeir sem taka þátt í félagslegum aðgerðum á grasrótarstigi aukið umfang starfsemi sinnar á sjálfsprottinn hátt og viðleitni þeirra þróast yfir í verkefni af varanlegri toga með viðeigandi stjórnunarumgjörð.
Í slíkum tilvikum getur hópur bahá’ía, oft með líkt-þenkjandi samherjum, stofnað sjálfseignarstofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni til að takast á við eitt eða annað málefni félagslegrar og efnahagslegrar þróunar. Slík stofnun starfar samkvæmt meginreglum bahá’í trúarinnar og er almennt talað um að hún starfi í anda bahá’í trúarinnar (e. Bahá’í inspired). Hún veitir stofnanalega hæfni í landi eða landshluta til að afla þekkingar á sviði þróunar, beita henni og miðla. Yfirleitt byrjar slík stofnun með eina aðaláherslu og leyfir viðleitni sinni að aukast að umfangi með tímanum.
Fyrir samfélög á flestum stöðum er eitt af fyrstu málefnunum sem brenna á því að tryggja að börn og ungmenni hafi aðgang að traustri akademískri menntun. Nú eru til nokkrar stofnanir sem starfa í bahá’í anda sem hafa þróað vel skilgreint nám, sérstaklega á sviði menntunar, og meðlimir svæðissamfélaga um allan heim geta, með þjálfun í notkun efnisins sem þær hafa þróað, tileinkað sér aðferðir þeirra og nálgun. Margt hæfileikaríkt ungt fólk, sem annars myndi neyðast til að yfirgefa heimabyggð og -hverfi í atvinnuleit, nýtur sérstaklega góðs af þessu. Þannig bætist við ný þekking og færni við þá getu sem það hefur aflað sér með þátttöku sinni í námskeiðum þjálfunarstofnunarinnar. Þetta unga fólk verður svo hvatamenn frekari framfara: Geta eykst innan samfélagsins, þótt hún sé smá í sniðum, til að grípa til sameiginlegra aðgerða á sviðum eins og menntun, heilbrigði og matvælaframleiðslu og til að standast áhrif eyðileggjandi afla sem brjóta niður samfélagsgerðina.
Í þessu umhverfi gegnir andlega svæðisráðið, stjórnstofnun sem þjónar byggðarlaginu, hlutverki sem rödd siðferðislegs valds. Það hefur samskipti við félagslegar og pólitískar einingar á staðnum og ráðfærir sig um það starf sem bahá’íar vinna að til að stuðla að framförum byggðarinnar eða hverfisins. Það tryggir einnig að heilindum viðleitninnar sé ekki stefnt í hættu þegar litlir hópar leitast við að bæta aðstæður á staðnum. Forðast er að takast á við of metnaðarfull verkefni sem myndu að endingu eyða orku og að hindra framfarir. Starfsemin vex í samræmi við getu íbúa á staðnum til að sinna henni. Sjálfbærni er þannig eðlileg afleiðing ferlisins.
Fyrir bahá’ía er félagslegum aðgerðum fylgt eftir með þeirri sannfæringu að sérhver íbúahópur eigi að geta markað sína eigin framfarabraut. Félagslegar breytingar eru ekki verkefni sem einn hópur fólks framkvæmir í þágu annars.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
