Ungmenni
Framlag ungmenna
Ungt fólk hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu bahá’í trúarinnar. Bábinn sjálfur kunngerði köllun sína þegar hann var aðeins tuttugu og fimm ára gamall og margir fylgjenda hans voru ungir að árum þegar þeir gengu trú hans á hönd. Í tíð Bahá’u’lláh og ‘Abdu’l-Bahá var ungt fólk í fararbroddi við að boða nýja trú og deila kenningum hennar með öðrum.
Þúsundir ungra bahá’ía hafa risið upp af hverri kynslóð til að feta í fótspor þessara og annarra einstakra sálna og svara kalli Bahá’u’lláh. Starf þeirra er undir leiðsögn yfirvalds bahá’í trúarinnar – sem í dag er Allsherjarhús réttvísinnar – sem hvetur unga bahá’ía til að nýta sér þann eldmóð og áhuga sem einkennir æskuna og leggja þannig afgerandi af mörkum til framfara andlegrar og efnislegrar siðmenningar.
Umfang leiðsagnar og hvatningar frá Allsherjarhúsi réttvísinnar og viðbrögð ungra bahá’ía í dag eru of víðtæk og starfsemin sem þau hvetja til of fjölbreytt til að hægt sé að lýsa þeim að fullu hér. Síður þessa efnisflokks beinast því að einu dæmi: röð ungmennaráðstefna á 114 stöðum um allan heim sem haldnar voru árið 2013, ásamt fjölda smærri samkoma sem hafa átt sér stað síðan.
Að auki varpa greinarnar hér að neðan, sem samanstanda af útdráttum úr námsefni sem kannað var á ráðstefnunum og síðari samkomum, ljósi á þætti í samtölum þátttakenda þegar þeir könnuðu saman viðfangsefni sem liggja til grundvallar þjónustu þeirra við mannkynið.
Aldursskeið ungmenna
Á ungmennaráðstefnunum hittist ungt fólk á ýmsum aldri með ólíka reynslu. Það eru unglingar sem eru að búa sig undir skyldur lífsins, með námi og þátttöku í fjölskyldu- og samfélagslífi.
Upphaf unglingsára
Unglingar (e. junior youth) á aldrinum 12 til 15 ára upplifa hraðar breytingar, líkamlegar, vitsmunalegar og tilfinningalegar, en á þeim aldri breytist maður úr barni í ungmenni.
Samfélagsuppbygging og að efla gagnkvæman stuðning og aðstoð
Núverandi kynslóð ungmenna stendur frammi fyrir þeirri miklu ábyrgð að bæta samfélagið. Á henni hvílir sú skylda að rækta umhverfi þar sem yngri meðlimir samfélagsins geta öðlast andlega og vitsmunalega krafta til að verða smiðir nýrrar siðmenningar.
Lagt af mörkum til framþróunar siðmenningar
Vinna bahá’íanna og vina þeirra við samfélagsuppbyggingu er ekki aðeins gott samfélagsverkefni unnið af óeigingjörnum einstaklingum. Hún byggist á þeirri trú að mannkynið sé nú á mjög sérstökum tímamótum í sögunni.
Myndir á þessari síðu:
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Úr safni Bahá'í þjóðarskrifstofunnar - Copyright © Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
