Lagt af mörkum til framþróunar siðmenningar

Meðal þess efnis sem tekið var fyrir á ungmennaráðstefnunum sem haldnar voru um allan heim árið 2013 og í þeim fjölda samkoma sem fylgdu í kjölfarið var eitt sem tengdist sérstaklega þeim möguleikum og eiginleikum sem fylgja æskuárunum. 

Eftirfarandi efnisgreinar eru teknar úr námsefninu sem þátttakendur ráðstefnanna stúderuðu um þetta efni.
 Vinna bahá’íanna og vina þeirra við samfélagsuppbyggingu er ekki aðeins gott samfélagsverkefni unnið af óeigingjörnum einstaklingum. Hún byggist á þeirri trú að mannkynið sé nú á mjög sérstökum tímamótum í sögunni. Í þróun sinni hefur mannkynið farið í gegnum stig sem líkjast barnæsku og unglingsárum en er nú við upphaf fullþroska. Tvö óaðskiljanleg ferli knýja það áfram, annað er upplausn, hitt sameining. Upplausnarferlið má sjá í ofbeldi, stríðsátökum og spillingu sem eru samfara hruni úrelts skipulags sem nú er ófært um að mæta þörfum heims á þroskabraut. Það veldur miklum glundroða og þjáningu en ryður um leið hindrunum úr vegi einingar. Sameiningarferlið tengist andlegum öflum sem leystust úr læðingi við komu Bahá’u’lláh. Annars vegar valda þessi öfl því að vaxandi fjöldi fólks vinnur alls staðar að einingu og framförum. Hins vegar eru þau smám saman að endurmóta þjóðfélög með meðvituðum aðgerðum bahá’ía og vina þeirra. 

… Það markmið að byggja nýja siðmenningu krefst algjörrar breytingar bæði hvað varðar skipulag þjóðfélagsins og framferðis einstaklinganna. Í þessu sambandi er kenningum Bahá’u’lláh ætlað að „valda umbyltingu á allri persónugerð mannkynsins, umbyltingu sem mun birtast bæði inn á við og út á við, og hefur áhrif bæði á innra líf þess og ytra ástand“.

Við uppbyggingu siðmenningar er óhjákvæmilegt að viðurkenna einingu allra jarðarbúa, fólks í sérhverju samfélagi. Viðurkenning á þessum grundvallarsannindum hefur margvíslega þýðingu fyrir sérhvert samfélag og fyrir þjóðfélögin í heild. Á þessum tímum hefur öllu mannkyni hlotnast jafn ríkur skerfur velvildar og blessunar hins eina sanna Guðs. Í öllum sínum fjölbreytileika deilir það réttindum og skyldum til að leggja sitt af mörkum til að skapa nýjan heim. Þegar tengsl meðlima í samfélagi, og milli þeirra og stofnananna, einkennast af ást og réttlæti, gefst öllum tækifæri til að nota eiginleika sína, þær Guðs gjafir sem þeir hlutu í vöggugjöf, til þess að vinna að hag samfélagsins. Þegar allir hafa aðgang að andlegri og vísindalegri þekkingu, geta meðlimir samfélagsins lært að beita henni í sínu sameiginlega lífi. Þetta tengist vinnu bahá’ía að samfélagsuppbyggingu sem var rædd í síðasta kafla og sækir í sig veðrið í mörgum umdæmum, borgarhverfum og byggðum um allan heim. Sú menningarbreyting sem þeir vinna að sýnir hvernig ný þjóðfélagsmynd vex upp úr viðleitni vaxandi fjölda fólks við að beita kenningum Guðs á þessum tímum í lífi æ fleiri samfélaga. 

Þetta er líka þýðingarmikið fyrir líf einstaklings sem þráir að leggja af mörkum til framþróunar siðmenningar. Manneskja sem leggur sig fram um að öðlast eiginleika, viðhorf og hæfni til að ná árangri og framförum, gæðir hina ýmsu þætti lífs síns sterkri köllun – jafnt menntun, starf, hjónaband og fjölskyldulíf. Slíkur einstaklingur kappkostar að fylgja háleitum hugsjónum trúarinnar. Að læra að forðast fordóma af öllu tagi, að fylgja háum siðferðisstaðli og sýna ráðvendni í öllum samskiptum, gerir einstaklingnum fært að verða áhrifamikill gerandi í að breyta samfélaginu. Sá sem „keppir að persónulegum þroska og starfi í þágu bahá’í hugsjóna“ er umkringdur samfélagi með tilgang, umhverfi sem knýr vini á öllum aldri til að styðja hverjir aðra við að ná sífellt hærri andlegum, siðferðilegum og vitsmunalegum þroska.
Port Vila, Vanúatú, ein af 114 ungmennaráðstefnum sem haldnar voru um allan heim að boði Allsherjarhúss réttvísinnar, 16. ágúst 2013
Frá þessu sjónarhorni mun sá sem gerir sér grein fyrir getunni sem boðskapur Bahá’u’lláh býr yfir til að endurskapa heiminn án efa fyllast miklum fögnuði þegar hann eða hún færir öllum mönnum innblástur hans og gerir þeim kleift að hefjast handa og uppfylla skyldur sínar sem meðvitaðir smiðir nýrrar siðmenningar.

Spurningar til íhugunar
  • Hvernig getur ungt fólk sem býr við margskonar félagslegar aðstæður tryggt að það fái gagnlegustu menntun sem völ er á? Hvernig getur atvinna eða starfsgrein þjónað sem tæki til að stuðla að uppbyggingu siðmenningar? Hvað gæti orðið til þess að starfið ynni gegn slíkum framförum? 
  • Hvernig getur ungt fólk búið sig vel undir hjónaband og fjölskyldu, þannig að það skipti máli fyrir nýtt samfélag?
  • Hvers konar nærsamfélag gæti hjálpað meðlimum sínum að þróa eiginleika og hæfni siðmenningarsmiða? 
  • Hvernig geta ungmenni, sem axla svo miklar byrðar við að byggja upp nýjan heim, stutt hvert annað á virkan og áhrifamikinn hátt til að taka framförum á öllum sviðum í lífi sínu?
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Leit