Upphaf unglingsára
Meðal þess efnis sem tekið var fyrir á ungmennaráðstefnunum sem haldnar voru um allan heim árið 2013 og í þeim fjölda samkoma sem fylgdu í kjölfarið var eitt sem tengdist sérstaklega þeim möguleikum og eiginleikum sem fylgja æskuárunum.
Eftirfarandi efnisgreinar eru teknar úr námsefninu sem þátttakendur ráðstefnanna stúderuðu um þetta efni.
Unglingar (e. junior youth) á aldrinum 12 til 15 ára upplifa hraðar breytingar, líkamlegar, vitsmunalegar og tilfinningalegar, en á þeim aldri breytist maður úr barni í ungmenni. Andlegir kraftar þeirra aukast. Vitundin kemst á hærra stig, sem leiðir af sér aukinn áhuga á djúpum spurningum, hæfni og getu. Á þessum þriggja ára afdrifaríka tíma myndast hugmyndir um fólk og samfélag sem hæglega gætu mótað allt lífið. Á sama tíma og glaðst er yfir þessari nýju hæfni, vakna þó stundum upp neikvæðar tilfinningar svo sem áhyggjur, kvíði og efi, sem geta valdið mótsagnakenndri hegðun. Þess vegna þarf á þessum aldri að beina þessari nýju hæfni að sjálflausri þjónustu við mannkynið.
Nokkuð er um að litið sé á unglingsaldurinn í neikvæðu ljósi. Algengt viðhorf er t.d. að þetta aldursskeið einkennist af ruglingi og erfiðleikum. Slík hugsun elur af sér ástand sem veldur óæskilegu hegðunarmynstri. Rétti skilningurinn á þessum aldri er að hér sé um að ræða óeigingjarnt ungt fólk, með „næma réttlætiskennd, mikla löngun til að fræðast um alheiminn og stuðla að byggingu betri heims“. Neikvæðu eiginleikarnir sem koma stundum fram eru sannarlega ekki eðlislægir þessu stigi á æviferli manneskjunnar.
Lykilatriðið sem skoða þarf er hvað veldur óásættanlegri hegðun sem stundum gerir vart við sig hjá sumum unglingum. Tveir þættir þarfnast vandlegrar íhugunar. Annars vegar hafa áhrif neikvæðra félagslegra afla leitt til útbreiðslu ýmissa samfélagsmeina sem hafa mikil áhrif á það hvernig ungt fólk lítur á sjálft sig og samfélagið. Hins vegar verða unglingar fyrir miklum áhrifum af því hvernig fullorðnir koma fram við þá. Þótt fólk á þessum aldri öðlist innsýn í ýmis mikilvæg mál, halda fullorðnir stundum áfram að koma fram við unglinga eins og börn. Þar að auki veldur ósamræmi orða og athafna hinna fullorðnu oft ruglingi hjá ungu fólki sem leitar að viðmiðum í lífi sínu.
Áhersla á áhrif neikvæðra afla á unglinga, felur ekki í sér þá hugmynd að unglingar séu ofurviðkvæmir. Þeir geta með aðstoð, mætt þessum öflum. Þeir geta þroskað með sér hugarfarslegan og sálrænan styrk sem gerir þeim ekki aðeins kleift að sigrast á slíkum áskorunum heldur gerir þá virka þátttakendur í mótun betra samfélags.
Spurningar til íhugunar
- Hugsið um unglinga í samfélaginu ykkar og ræðið á hvaða hátt þeir verða fyrir áhrifum af eyðileggjandi öflum, og til hvers konar hegðunar þessi öfl leiða.
- Lýsið andlegum og vitsmunalegum framförum unglinganna sem taka þátt í starfseminni og hvernig þeir læra að leggja sitt af mörkum til þess að fjölskyldur þeirra og samfélög taki einnig framförum.
- Ræðið hvaða andlegu eiginleika og viðhorf hvetjarinn og þeir sem styðja unglingahópa ættu að kosta kapps um að sýna.
Apia, Samóa, ein af 114 ungmennaráðstefnum sem haldnar voru um allan heim að boði Allsherjarhúss réttvísinnar, 16. ágúst 2013
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
