Samfélagsuppbygging og að efla gagnkvæman stuðning og aðstoð
Meðal þess efnis sem tekið var fyrir á ungmennaráðstefnunum sem haldnar voru um allan heim árið 2013 og í þeim fjölda samkoma sem fylgdu í kjölfarið var eitt sem tengdist sérstaklega þeim möguleikum og eiginleikum sem fylgja æskuárunum.
Eftirfarandi efnisgreinar eru teknar úr námsefninu sem þátttakendur ráðstefnanna stúderuðu um þetta efni.
Núverandi kynslóð ungmenna stendur frammi fyrir þeirri miklu ábyrgð að bæta samfélagið. Á henni hvílir sú skylda að rækta umhverfi þar sem yngri meðlimir samfélagsins geta öðlast andlega og vitsmunalega krafta til að verða smiðir nýrrar siðmenningar. Það er enginn vafi á því að verkefnið er gríðarlegt. Til að vinna gegn sterkum félagslegum öflum sem ógna markmiðum þeirra og krafti geta ungmennin reitt sig á óbrigðula aðstoð Guðs. Þau þurfa líka að bæta getuna til að skapa andrúmsloft gagnkvæms stuðnings og aðstoðar í sínum eigin hópi og í samfélögum sínum, en í slíku andrúmslofti margfaldast máttur þeirra til að umbreyta samfélaginu.
Þið eruð nú beðin um að hugleiða hvað ykkar kynslóð geti lagt af mörkum til að byggja upp þróttmikil samfélög í borgarhverfum og smærri byggðum, og í hverju því umhverfi sem finna má fólk sem þráir að taka þátt í sameiginlegri umbreytingu.
Til þess að velta þessari spurningu fyrir sér er nauðsynlegt að skoða stuttlega nokkra þætti aðgerðarammans sem bahá’í samfélagið um allan heim kappkostar að vinna eftir. Flest af því sem bahá’í samfélög gera til að byggja upp ný samfélög í anda kenninga Bahá’u’lláh er unnið á vettvangi umdæmis, landfræðilega afmörkuðu svæði með þorpum eða litlum byggðum og kannski lítilli borg eða þá stórborg og úthverfum hennar. Meginmarkmiðið í hverju umdæmi er að beita kenningum Bahá’u’lláh til að styrkja þrjá aðalgerendur breytingaferlisins, það er einstaklinginn, samfélagið og stofnanirnar. Í því felst að nýta þjálfunarferlið til að fá til liðs við okkur vaxandi fjölda fólks sem er fært um að stuðla að andlegum og félagslegum framförum; byggja kraftmikil svæðasamfélög þar sem „einstaklingar, fjölskyldur og stofnanir ... [vinna] saman að velferð fólks jafnt innan sem utan sinna eigin raða“ og þróa stofnanir sem hafa getu til að virkja, sameina og beina í réttan farveg kröftum fjölda átrúenda sem þrá að þjóna. Óhjákvæmilega eru umdæmi á ólíkum stigum hvað varðar fjölda og færni þeirra sem leggja hart að sér við breytingar, og eins hvað varðar styrk og þroska svæðasamfélaga og –stofnana. Sumstaðar er vinna bahá’ía við að byggja nýtt samfélag enn ekki hafin.
Aðstæður vinanna í umdæmum eru jafn ólíkar og þau eru mörg. Margir búa í tiltölulega einsleitum byggðum í dreifbýli en aðrir í stórborgum þar sem aðstæður eru oftast ólíkar eftir hverfum. Sumstaðar ríkir sterk samfélagsvitund en á öðrum stöðum er hún greinilega ekki til staðar. Átrúendur í umdæmi kunna einnig að eiga samskipti við aðra á grundvelli ákveðinna sameiginlegra hugðarefna eða hagsmuna, svo sem náms við tiltekinn háskóla eða vera í félagsskap sem tengist starfi eða félagsmálum, án þess að það tengist búsetu. Til að byggja upp nýtt samfélag leitast vinirnir við að skapa á þessum vettvangi aðstæður þar sem beita má kenningum Bahá’u’lláh. Ekkert samfélag getur upplifað þær andlegu og félagslegu framfarir sem þetta stig í lífi mannkynsins býður upp á án þess að meðlimir þess leggi á sig óeigingjarna þjónustu.
Lima, Perú, ein af 114 ungmennaráðstefnum sem haldnar voru um allan heim að boði Allsherjarhúss réttvísinnar, 3. ágúst 2013
Þegar viðleitni ungu kynslóðarinnar til að ganga braut þjónustu er hugleidd, er mikilvægt að huga að því hvernig unga fólkið getur „stuðlað að þróttmiklu samfélagslífi í borgarhverfum og smærri byggðum“.
- Hvað finnst ykkur vera raunverulegt eðli vináttu? Hvernig mynduð þið meta hvaða vinátta er jákvæð og hver skaðleg fyrir framfarir ungs fólks?
- Að skapa andrúmsloft gagnkvæms stuðnings felur í sér sýn á mikinn fjölda ungmenna sem vinna saman sem sannir vinir, að því að umbreyta samfélaginu. Hvernig mynduð þið standa að því að uppfylla slíka sýn í samfélaginu ykkar eða umdæmi? Hversu mikilvægar væru samræður ungmennanna – og hver væri tilgangur þeirra og innihald?
- Ferli samfélagsuppbyggingar í anda kenninga Bahá’u’lláh þarf að eiga sér stoð í samræðu um kenningar trúarinnar sem leiðir smám saman í ljós hvað þær feli í sér fyrir líf þess samfélags. Hvað getið þið gert til að hvetja fjölda ungmenna til að vera með í þessari samræðu, og taka þátt í þeim lærdómi og þeirri þjónustu sem hún óhjákvæmilega tengist?
- Hvað leggja ungmenni af mörkum eða gætu þau lagt af mörkum, til að styrkja samráðsferlið í ykkar samfélagi?
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
