Aldursskeið ungmenna

Meðal þess efnis sem tekið var fyrir á ungmennaráðstefnunum sem haldnar voru um allan heim árið 2013 og í þeim fjölda samkoma sem fylgdu í kjölfarið var eitt sem tengdist sérstaklega þeim möguleikum og eiginleikum sem fylgja æskuárunum. 

Eftirfarandi efnisgreinar eru teknar úr námsefninu sem þátttakendur ráðstefnanna stúderuðu um þetta efni.
Boston, Bandaríkjunum, ein af 114 ungmennaráðstefnum sem haldnar voru um allan heim að boði Allsherjarhúss réttvísinnar, 21. júlí 2013
Á ungmennaráðstefnunum hittist ungt fólk á ýmsum aldri með ólíka reynslu. Það eru unglingar sem eru að búa sig undir skyldur lífsins, með námi og þátttöku í fjölskyldu- og samfélagslífi. Það eru eldri ungmenni í háskólum eða á vinnumarkaði, gift eða að stofna fjölskyldu. Sumir hafa vegna aðstæðna þurft að axla ábyrgð þeirra sem eldri eru og afkoma fjölskyldna þeirra kann að vera undir þeim komin. Þau koma líka frá ólíkum samfélögum, sum úr dreifbýli og önnur frá milljónaborgum.

Óháð félagslegum kringumstæðum, þráir ungt fólk andlegan og vitsmunalegan vöxt og „að leggja af mörkum til hagsbóta fyrir heiminn allan“. Það býr yfir stórkostlegum kröftum sem áríðandi er að beina í réttan farveg. Því sé þeim beint á ranga braut, eða aðrir fá færi á að misnota þessa krafta, geta þeir kallað mikla ógæfu yfir samfélagið. Mörg ungmenni í heiminum eru vakandi fyrir sýn Bahá’u’lláh á heim þar sem ríkir andleg og efnisleg velmegun.
Óeigingjörn þjónusta við samfélagið felur í sér möguleika, bæði fyrir eigin þroska og aukna hæfni til að stuðla að samfélagslegum framförum. ‘Abdu’l-Bahá lagði áherslu á að þjónusta við mannkynið sé þjónusta við Guð. Með því að beina hæfileikum sínum og getu að samfélagsumbótum, verða þeir „uppspretta rósemi í heimi sköpunarinnar“. Þar sem þeir eru innblásnir anda örlætis í daglegu lífi sínu og vinna sjálfboðastarf til að bæta líf annarra, laða þeir að sér aðstoð og staðfestingu Guðs. 

Það er því grundvallarnauðsyn að sífellt fleiri fastsetji sér að „helga sig og styrkja fyrir líf í þjónustu“, snemma á ævinni. Eðlilega eru ýmis viðfangsefni sem taka tíma ungmenna og orku, svo sem nám, vinna, afþreying, andlegt líf og líkamleg heilsa. En þau læra að forðast það brotakennda viðhorf til lífsins sem rýfur samhengið milli hinna ýmsu þátta þess. Samhengislaus lífssýn af þessu tagi gerir fólk oft að fórnarlömbum rangra valkosta sem byggja á fölskum forsendum, svo sem spurningum um hvort það eigi að stunda nám eða þjóna, bæta eigin hag eða hag annarra, vinna eða helga sig þjónustu. Þegar fólki mistekst að líta á líf sitt sem eina heild, veldur það oft áhyggjum og uppnámi. Í gegnum þjónustu getur ungt fólk skapað sér líf, þar sem ólík svið uppfylla hvert annað. 

Full vissu um óþrjótandi blessun Guðs þeim til handa sem rísa upp til að þjóna, skoða ungmenni umhverfi sitt og samskiptin við það – fjölskylduna, jafnaldra sína, skólann, vinnuna, fjölmiðla, samfélagið – og átta sig á þeim félagslegu öflum sem eru þar að verki. Sum þessara afla, svo sem sannleiksást, þekkingarþrá og löngun eftir fegurð, knýja þau áfram á braut þjónustu. Önnur öfl, svo sem aukin efnishyggja og eigingirni, eru niðurbrjótandi og afskræma heimsmynd ungs fólks, ásamt því að hamla vexti einstaklinga og samfélaga. Á sama tíma og ungmenni leggja enn meira af mörkum við að byggja betri heim, eykst hæfni þeirra á margan hátt. Þau laða að sér andleg og félagsleg öfl sem gera þau að smiðum nýrrar siðmenningar.

Spurningar til íhugunar 
  • Hvaða jákvæðu og neikvæðu öfl eru að verki í því umhverfi sem ungmenni lifa og hrærast í? 
  • Á hvaða hátt hafa þessi rými áhrif á ungt fólk? Hvernig lítið þið á hlutverk ykkar kynslóðar í þjóðfélaginu? Hvaða æðri tilgangur mótar athafnir ykkar sem einstaklinga og hóps? 
  • Ræðið jákvæð áhrif þjónustu á andlegan og vitsmunalegan vöxt og á getu yngri kynslóðarinnar til að stuðla að félagslegum framförum.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Leit