Um orðið bahá’í

Orðið bahá'í á arabísku og persnesku

Um orðið bahá'í

Í bahá’í ritum og bókmenntum er stuðst við umritunarkerfi sem hefur þann tilgang að umrita arabísk og persnesk orð yfir á latneskt letur fyrir þá bahá’ía sem nota slíkt letur eins og gert er hér á landi. Þannig er ritun orða af persneskum og arabískum uppruna samræmd til að koma í veg fyrir rugling sem annars yrði ef mismunandi umritun væri notuð á hverju tungumáli fyrir sig. Það er að ýmsu leiti hliðstætt við önnur akademísk kerfi. Það er hannað til að nota fyrir bæði arabísku og persnesku sem einfaldar allt hvað varðar bahá’í texta þar sem þessi tvö tungumál eru notuð á víxl.

Ólíkt hljóðritun hefur umritun ekki þann tilgang að leiðbeina um framburð orða heldur að tilgreina hvernig orðin eru rituð á frummálinu. Þannig gefur umritun til kynna nálgun að framburði sem veltur á samhenginu, annars vegar á arabísku og hins vegar á persnesku. 

Í bahá’í umritunarkerfinu stendur hver stafur fyrir ákveðinn arabískan bókstaf. Orðið bahá, sem kemur fyrir í nafni trúarinnar og nafni Bahá’u’lláh, opinberandans, þýðir dýrð. Bahá’u’lláh þýðir þannig dýrð Guðs og bahá’í þýðir sá sem fylgir dýrðinni. Fyrir íslenska lesendur er rétt að taka fram að stafurinn „á“ í umrituðum orðum er ekki borinn fram eins og „á“ í íslenskum orðum. Íslenskir bahá’íar bera það fram eins og a en Persar bera það fram sem millihljóð milli a og o, svipað og sænskt å. 


„Bahá’í trú“ skal rita í tveimur orðum á sama hátt og kristin trú, ekki „bahá’ítrú“, enda er orðið „bahá’í“ hér lýsingarorðsígildi.

Í öllum ritum sem Bahá’í samfélagið gefur út er umritun orðsins fylgt. Þegar vísað er til átrúenda sem aðhyllast trúna beygist orðið svo[1]:

Eintala án gr. Eintala m. gr. Fleirtala án gr. Fleirtala m. gr.
nf. bahá’íi bahá’íinn bahá’íar bahá’íarnir
þf. bahá’ía bahá’íann bahá’ía bahá’íana
þgf. bahá’ía bahá’íanum bahá’íum bahá’íunum
ef. bahá’ía bahá’íans bahá’ía bahá’íanna

[1] Stofnun Árna Magnússonar var send fyrirspurn í júní 2007 fyrir Andlegs þjóðarráðs bahá’ía á Íslandi og barst svar frá henni þann 26. júní þar sem fallist var á að orðið skuli enda á –i til að það félli að íslensku beygingarkerfi.

Leit