Nánar um bahá'í umritun

Orðið bahá'í á persneku og arabísku.

Nánar um bahá’í umritun

Í bahá’í bókmenntum og skrifum um trúna er fylgt umritunarstaðli sem Shoghi Effendi, Verndari bahá’í trúarinnar, kom á fyrir bahá’í bókmenntir um allan heim árið 1923. Staðlinum er enn þann dag í dag fylgt í öllu bahá’í efni sem skrifað er með latnesku letri. Hver stafur eða undirstrikað stafapar stendur fyrir arabískan eða persneskan bókstaf. Vikið er stundum frá þessu kerfi í tilviki borga og staða sem öðlast hafa sess í íslensku. Notast er við broddstafi eins og „á“ og „í“ í íslensku[1], auk stafa með punkti undir, á borð við „ḥ“ og „ẓ“. Framburður persneskra og arabískra orða er ekki alltaf eins og venjulegur Íslendingur gæti haldið og eru algeng mistök að bera „á“ fram eins og íslenskt á, sérstaklega í orðinu bahá’í og titli sjálfs opinberandans, Bahá’u’lláh. Hér er yfirlit yfir helstu stafi og stafapör sem koma fyrir í þessu kerfi og framburður miðað við arabísku eða persnesku:

  • á – borið fram eins og millihljóð milli a og o, líkt og å sænsku, ekki eins og íslenskt á. Íslenskir bahá’íar bera orðið bahá’í fram svo: bahaí eða bahæ.
  • i – er borið fram eins og e (persneska) eða i (arabíska)
  • y er borið fram eins og j
  • j er borið fram eins og enskt j í nafninu Jim.
  • u er borið fram eins og o
  • aw er borið fram eins og ó
  • ay er borið fram eins og ei eða ey
  • th er borið fram eins og þ (arabíska) eða s (persneska)
  • ch er borið fram eins og í enska orðinu cheek
  • kh er ekki til í íslensku, er svipað en grófara en ch í Loch Ness
  • gh er borið fram svipað og g í sagði.
  • zh er borið fram eins og franskt j, eins og í nafninu Jean.
  • sh er borið fram eins og í enska orðinu shuttle.
  • ḍ er borið fram eins og z í enska orðinu zoo (persneska) eða flattyngt d (arabíska)
  • ḥ er kokmælt h
  • q er borið fram eins og g aftur í koki.
  • z er borið fram eins og z í enska orðinu zoo.
  • ẓ er borið fram eins og íslenskt ð (arabíska) eða z í enska orðinu zoo (persneska).
  •  Úrfellingakomman ‘ (snýr eins og tölustafurinn 6) í upphafi eða enda orða stendur fyrir arabíska bókstafinn ayn sem stundum er borið fram sem stopphljóð, eins og í upphafi nafns ‘Abdu’l‑Bahá eða lok nafnsins Badí‘
Aðrir stafir eru bornir fram eins og á íslensku, þar á meðal broddstafirnir„í“og „ú“. 

Úrfellingarmerkið (sem snýr eins og tölustafurinn 9) í orðinu bahá'í er einnig mikilvægt.

Orðið bahá'í kemur úr persnesku og arabísku. Það er dregið af orðinu bahá' (بهاء), sem merkir „dýrð“, „ljómi“ eða „skínandi fegurð“. Endingin -í (í persnesku: -ی) merkir „sem tilheyrir“ eða „tengist“. Þannig merkir bahá'í í raun:

„sem tilheyrir Bahá“ eða „fylgismaður Bahá“ — í þessu tilviki vísar það til Bahá’u’lláh (بهاءالله), stofnanda bahá'í trúarinnar. 

Úrfellingarmerkið í bahá'í táknar í raun stöðvun eða „hamza“ (ء) í arabískri stafsetningu sem stendur á milli tveggja sérhljóða — hér á milli bahá og í til að sýna að þau eru borin fram hvort í sínu lagi:

bahá - í frekar en að þau renni saman. 

Þegar þetta er skrifað á persnesku: بهائی, er hamza oftast ekki skrifuð sérstaklega í daglegu ritmáli, en hún er í raun til staðar í framburði og á rætur í arabískri upprunaorðræðu.

Sé umritunarstaðlinum fylgt er nafn trúarbragða Múhameðs spámanns, „islám“ en ekki „íslam“, eins og hefur orðið ofan á hér á landi. Staðreyndin er sú að orðið er borið fram esslām (persneska) eða isslaam (arabíska). Upphafsstafurinn í nafninu, ا (alef), gefur alls ekki frá sér í-hljóð á hvorugu tungumáli nema hann standi með stafnum ی (je) sem hann gerir ekki í þessu tilfelli: اسلام – alef, sín, lām, alef, mím. 

Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru til glöggvunar á helstu þáttum í umritunarkerfinu og þar með af hverju áið í orðinu bahá’í er ekki borið fram eins og íslenskt á. Á vef bahá’í heimssamfélagsins má finna grein á ensku um umritunarkerfið sem umfjöllunin var m.a. byggð á: https://www.bahai.org/library/transliteration/1

[1] Einnig er leyfilegt að nota strik í stað brodda sem myndi gefa til kynna að ekki sé um íslenskt framburðarkerfi að ræða, sbr. bahā’ī, en það er ekki einfalt að nota slíka stafi á íslensku lyklaborði.

Leit