Bahá’u’lláh og sáttmáli hans
Sáttmálinn sem Bahá’u’lláh gerði við fylgjendur sína er einstæður í sögu mankynsins og varðar vald til bindandi túlkunar og löggjafar innan trúarinnar. Með því er guðleg leiðsögn tryggð, að Bahá’u’lláh og Bábinum gengum. Fyrir tilstilli sáttmálans hefur bahá’í trúin varðveitt órofa einingu sína í stað þess að klofna í sértrúarhópa og verða sundrungaröflum að bráð. Bahá’íar viðurkenna guðlega visku og vald Bábsins og Bahá’u’lláh auk þeirra sem útnefndir voru eftir þeirra dag.


Bábinn
Bábinn boðaði komu bahá’í trúarinnar um miðja nítjándu öld. Hann sagði fyrir um komu opinberanda Guðs sem myndi umbreyta andlegu lífi mannkyns. Markmið hans var að undirbúa komu opinberanda sem væri honum meiri sem myndi færa mannkyni tíma friðar og réttlætis.

Bahá’u’lláh
Bahá’u’lláh, sem merkir „Dýrð Guðs“, er hinn fyrirheitni sem Bábinn sagði fyrir um, líkt og allir aðrir guðlegir boðberar fortíðarinnar. Bahá’u’lláh færði mannkyni nýja opinberun frá Guði. Með penna sínum skrifaði hann þúsundir versa, bréfa og bóka. Í ritum sínum setti hann í stórum dráttum fram innviði til að þróa heimssiðmenningu sem mun taka tillit til bæði andlegra og efnislegra þátta mannlegs lífs. Að launum þoldi hann 40 ára fangavist, pyntingar og útlegð.

‘Abdu’l‑Bahá
Í erfðaskrá sinni útnefndi Bahá’u’lláh elsta son sinn sem lögmætan túlkanda kenninga sinna og höfuð trúarinnar eftir sinn dag. Í austri og vestri varð ‘Abdu’l‑Bahá þekktur sem sendiherra friðar, fyrirmynd um mannlega hegðun og forystumaður nýrrar trúar. ‘Abdu’l‑Bahá leiddi samfélagið farsællega í mörg ár, þrátt fyrir að óvinir trúarinnar, bæði utan hennar sem innan, reyndu að hindra hann í því.

Shoghi Effendi
Til að koma í veg fyrir sundrungu innan trúarinnar eftir sinn dag, skrifaði ‘Abdu’l‑Bahá sömuleiðis erfðaskrá, þar sem hann útnefndi eftirmann sinn og túlkanda kenninganna. Fyrir valinu varð dóttursonur hans, Shoghi Effendi, sem varð Verndari trúarinnar. Hann varði 36 árum í að næra þróun bahá’í samfélagsins, dýpka skilning þess og að styrkja einingu þess. Fyrir vikið óx samfélagið og endurspeglaði fjölbreytileika alls mannkyns.

Allsherjarhús réttvísinnar
Í dag nýtur bahá’í heimssamfélagið leiðsagnar Allsherjarhúss réttvísinnar. Í lögbók sinni fól Bahá’u’lláh Allsherjarhúsi réttvísinnar að hafa jákvæð áhrif á velferð mannkyns, efla menntun, stuðla að friði og hnattrænni velmegun, og verja mannlega reisn og stöðu trúar í heiminum.

Bahá’í stjórnkerfið
Að boði Bahá’u’lláh er engin prestastétt í bahá’í trúnni, en í stað þess stofnsetti hann stjórnskipulag. Kjörinn armur þess samanstendur af níu manna andlegum ráðum á fjórum stigum. Á alþjóðlega sviðinu fer Allsherjarhús réttvísinnar með æðsta vald og í hverju landi hefur þjóðarráð umsjón með málefnum trúarinnar. Á neðsta stiginu starfa andleg svæðisráð sem starfa innan marka borgaralegra lögsagnarumdæma, t.d. sveitarfélaga hér á landi.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
