„ Festið auglit yðar á honum sem Guð mun birta á degi upprisunnar.”

— Bábinn
Árið 1844 kunngerði ‘Alí Muḥammad, ungur kaupmaður frá borginni Shíráz í suðurhluta Persíu, að í nánd væri nýr boðberi Guðs sem öll trúarrit heims hefðu talað um og sem leggja myndi grunn að ríki friðar og farsældar í heiminum. Eftir yfirlýsingu sína tók hann sér titilinn Bábinn sem merkir hliðið - þ.e. hliðið að hinum fyrirheitna endurlausnara mannkyns. Bábinn gaf skýrt til kynna í ritum sínum að hann ætti við Bahá’u’lláh.

Tugir þúsunda manna og kvenna um allt landið urðu fylgjendur Bábsins, en klerkarnir og ríkisstjórnin tóku saman höndum um að kæfa trúna í fæðingu. Átrúendurnir voru ofsóttir og myrtir í stórum stíl. Árið 1850 var Bábinn sjálfur tekinn af lífi í borginni Tabríz, aðeins þrítugur að aldri.

 Helgidómur Bábsins

Eftir píslarvætti Bábsins var líkamsleifum hans varpað á brún virkisgrafar fyrir utan borgarveggina í Tabríz. Þaðan var þeim bjargað að næturlagi af fylgjendum hans. Árum saman voru þær faldar á ýmsum stöðum í Persíu, en loks tókst að flytja þær til landsins helga. Þær hvíla nú í helgidómi í fögru umhverfi á Karmelfjalli, í borginni Haifa.

 Rit Bábsins

Rit Bábsins eru mikil af vöxtum. Meginritið nefnist Bayáninn. Hann ritaði einnig margar fallegar og máttugar bænir. Ein sú þekktasta er þessi: 

„Er nokkur sá er firrir erfiðleikum nema Guð? Seg: Lof sé Guði. Hann er Guð. Allir eru þjónar hans og allir lúta boðum hans.“

Ítarlegra lesefni um Bábinn á íslensku: Og sólin rís eftir William Sears.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Leit