Shoghi Effendi
Shoghi Effendi
Árnaðaróskir og vegsömun, dýrð og blessun, hvíli yfir þessari fyrstu grein Hins helga og guðdómlega lótusviðar, sem vaxið hefur af tvíburatrjánum heilögu ... þessari undursamlegu, einstæðu og ómetanlegu perlu, sem birtist tindrandi úr þessum bylgjandi tvíburahöfum ...
Úr erfðaskrá og sáttmála ‘Abdu’l‑Bahá þar sem hann kvað á um útnefningu Verndara eftir sinn dag.
Í því augnamiði að tryggja að opinberun sín myndi ná fram markmiði sínu um að sameina heiminn og að trúin myndi varðveita einingu sína útnefndi Bahá’u’lláh elsta son sinn, ‘Abdu’l‑Bahá sem miðju sáttmála síns og kvað á um stofnun Allsherjarhúss réttvísinnar. Um fjórtán árum eftir að ‘Abdu’l‑Bahá tók við af föður sínum skrifaði hann erfðaskrá þar sem Shoghi Effendi, dóttursyni hans, var falið að taka við af honum í hlutverki Verndara trúarinnar auk þess sem hann kvað á um ákveðnar meginreglur sem Allsherjarhúsið ætti að starfa eftir.
Bæði Allsherjarhús réttvísinnar og Verndarinn fengu það hlutverk að beita meginreglum trúarinnar, framfylgja lögum hennar, vernda stofnanir hennar og laga trúna að síbreytilegum þörfum síframsækinnar siðmenningar.

Shoghi Effendi var rétt rúmlega tvítugur þegar þetta þungvæga embætti féll á herðar hans. Í 36 ár hlúði Shoghi Effendi að þróun trúarinnar með kerfisbundnum hætti með gríðarlegri framsýni, visku og helgun, dýpkaði skilning átrúenda og styrkti einingu bahá’í samfélagsins eftir því sem það óx og dafnaði og endurspeglaði í sífellt meiri mæli fjölbreytileika mannkyns.

Eitt af afrekum hans var að þróa bahá’í heimsmiðstöðina og lét hann reisa Alþjóðlega bahá'í minjasafnið sem hýsir ýmsa gripi sem tengjast höfuðpersónum trúarinnar.
Hann sá fyrir að fleiri byggingar í svipuðum stíl myndu rísa í grenndinni í boga sem mynda skyldu stjórnfarslega heimsmiðstöð trúarinnar

Auk þess að þýða fjölmörg rit Bahá’u’lláh yfir á ensku skrifaði hann fjölmörg bréf með leiðsögn til bahá’ía um allan heim. Þar á meðal er ritið Guðlegt réttlæti í nánd sem þýtt hefur verið á íslensku.
Í stjórnartíð Shoghi Effendi þróaðist stjórnskipulagið sem Bahá’u’lláh hannaði til að hafa umsjón með málefnum trúarinnar hratt um allan heim. Hann þýddi fjölmörg helgirit trúarinnar yfir á ensku, þróaði andlega og stjórnfarslega miðstöð trúarinnar í Landinu helga og gaf ríka innsýn inn í andlega vídd siðmenningar og eðli þjóðfélagslegra umbreytinga í þúsundum bréfa sem hann skrifaði og svipti hulunni af mikilfenglegri framtíð sem bíður mannkynsins.
Undir hans stjórn breiddist trúin út um allan hnöttinn og stjórnkerfi hennar festi rætur í mörgum löndum. Auk þess útnefndi hann nokkra hæfa og helgaða einstaklinga sem Hendur málstaðarins til að aðstoða sig við útbreiðslu og treystingu trúarinnar. Þegar Verndarinn andaðist skyndilega árið 1957, aðeins rúmlega sextugur að aldri, án þess að hafa útnefnt eftirmann sinn, tóku Hendur málstaðarins við stjórn trúarinnar tímabundið, uns hægt var að kjósa alþjóðlega stjórn trúarinnar, Allsherjarhús réttvísinnar, árið 1963.
Tvö heildstæð rit Shoghi Effendi hafa verið þýdd á íslensku: Guðlegt réttlæti í nánd og Trúarkerfi Bahá’u’lláh. Auk þess hefur bókin Perlan ómetanlega verið gefin út en hún er ævisaga Verndarans rituð af ekkju hans Amatu’l-Bahá Rúhíyyih Khánum.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
