Bahá’í stjórnkerfið
„Veröldin hefur gengið úr skorðum vegna altæks áhrifavalds þessa nýja og æðsta heimsskipulags. Skipulögðu lífi mannkynsins hefur verið umbylt fyrir atbeina þessa einstæða, undursamlega kerfis hvers líka dauðleg augu hafa aldrei séð.“
–Bahá’u’lláh
Að boði Bahá’u’lláh er engin prestastétt í bahá’í trúnni en í stað þess stofnsetti þess í stað hann stjórnskipulag, sem er tvíþætt. Annar vængurinn er kosinn og hinn útnefndur.
Kjörni armurinn samanstendur af níu manna andlegum ráðum á fjórum stigum. Á alþjóðlega sviðinu fer Allsherjarhús réttvísinnar með æðsta vald og í hverju landi hefur þjóðarráð umsjón með málefnum trúarinnar. Í stærri löndum starfa landshlutaráð sem hafa umsjón með málefnum trúarinnar í afmörkuðum landshluta. Á neðsta stiginu starfa andleg svæðisráð sem starfa innan marka borgaralegra lögsagnarumdæma, t.d. sveitarfélaga hér á landi.
Andleg þjóðarráð eru kosin árlega á landsþingi af fulltrúum úr kjördæmum sem hverju landi er skipt í út frá fjölda átrúenda þar sem leitast er við að hver fulltrúi hafi jafn marga átrúendur á bak við sig. Hvert kjördæmi samanstendur af einu eða fleiri svæðissamfélögum (sem hér á landi fylgja sveitarfélagamörkum).
Kosning til andlegra svæðisráða fer sömuleiðis fram árlega. Kosningarétt hafa allir átrúendur sem náð hafa 18 ára aldri innan viðkomandi svæðissamfélags.
Allir meðlimir samfélagsins sem náð hafa 21 árs aldri eru í kjöri til andlegra ráða. Kosningafyrirkomulagið er einstakt, því hvorki er leyft að koma með tilnefningar, bjóða fram né heyja kosningabaráttu.
Útnefndi armurinn starfar einnig á 4 stigum. Alþjóðlega kennslumiðstöðin er níu manna ráð sem Allsherjarhús réttvísinnar skipar og hefur umsjón með starfi álfuráða sem eru fimm: Fyrir Afríku, Ameríku, Asíu, Ástralasíu og Evrópu. Meðlimir þeirra eru álfuráðgjafar, alls 90 talsins, sem starfa fyrst og fremst sem einstaklingar en kom reglulega saman til samráðs innan síns álfuráðs. Álfuráðgjöfum til aðstoðar eru svo aðstoðarráðgjafar sem starfa innan tiltekins lands eða landshluta. Þeim til aðstoðar geta verið aðstoðarmenn sem aðstoðarráðgjafarnir útnefna eftir þörfum og starfa innan tiltekins svæðis eða til að sinna tilteknum verkefnum.
Útnefndi armurinn gegnir því mikilvæga hlutverki að vernda málstaðinn og efla útbreiðslu hans, en hefur engin völd. Þau liggja alfarið hjá hinum kjörna armi.
Kvikmynd sem veitir innsýn í 100 ára starf og lærdómsferli bahá’í samfélaga frá árinu 1921. Sagt er frá uppbyggingu bahá'í stjórnkerfisins um allan heim. Með íslenskum texta.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
