Bahá’u’lláh
Bahá’u’lláh
„Þetta er sá dagur, þegar ágætustu gjöfum Guðs hefur verið úthellt yfir mennina...“
–Bahá’u’lláh
Hafsjór orða
Kenningar Bahá’u’lláh sem opinberaðar voru fyrir meira en 150 árum voru ótrúlega framsýnar, m.a. þær sem lúta að einingu mannkyns, einingu trúarbragða, jafnrétti kynjanna og nýju heimsskipulagi.
Kenningar Bahá’u’lláh sem opinberaðar voru fyrir meira en 150 árum voru ótrúlega framsýnar, m.a. þær sem lúta að einingu mannkyns, einingu trúarbragða, jafnrétti kynjanna og nýju heimsskipulagi.
Helgirit fyrri trúarbragða voru ekki skráð fyrr en mörgum árum eftir andlát stofnandans og frumritin hafa glatast. Þessu er ekki þannig farið með helgirit bahá'í trúarinnar. Tekist hefur að varðveita fjölda frumhandrita sem Bahá’u’lláh ritaði með eigin hendi, eða ritarar hans skráðu um leið og opinberunin átti sér stað. Talið er að heildarsafn rita hans gæti numið um 100 bindum.
Fangavist og útlegð
Bahá’u’lláh fæddist árið 1817 í Tehran, höfuðborg Persíu (nú Íran). Upprunalegt nafn hans var Mírzá Husayn ʻAlí, en síðar varð hann þekktur sem Bahá’u’lláh, Dýrð Guðs. Fjölskylda hans var rík, því faðir hans var ráðherra við hirð keisarans. Þegar honum bauðst að taka við stöðu föður síns að honum látnum hafnaði hann því. Í stað þess eyddi hann auðæfum sínum til að hjálpa fátækum og nauðstöddum.
Bahá’u’lláh gekk strax til liðs við Bábinn og varð öflugasti talsmaður þeirrar trúar sem hann boðaði. Þegar skefjalausar ofsóknir hófust gegn hinni nýju trú, sem endaði með því að Bábinn var tekinn af lífi og nánast allir lærisveinar hans sömuleiðis, þurfti engum að koma á óvart að Bahá’u’lláh yrði ekki hlíft. Hann var handtekinn, færður í hlekki og honum varpað í hræðilega neðanjarðardýflissu í höfuðborginni. Allar jarðneskar eigur hans voru gerðar upptækar. Þegar hann losnaði úr fangelsinu eftir fjóra mánuði, nær dauða en lífi, var hann ásamt fjölskyldu sinni sendur í útlegð um hávetur til Bagdað í Írak.

Þegar Bahá’u’lláh losnaði úr fangelsinu eftir fjóra mánuði, nær dauða en lífi, var hann ásamt fjölskyldu sinni sendur í útlegð um hávetur til Bagdað í Írak.

Hús Bahá’u’lláh í Tákur, Mázandaránhéraði í Íran. Það var eyðulagt af stjórnvöldum í Íran árið 1981. Myndin er tekin árið 1975.

Mírzá Buzurg, faðir Bahá’u’lláh, var ráðherra í ríkisstjórn Persakeisara.

Suðurhluti Tehran þar sem glæpamenn voru hengdir og margir fylgjendur Bábsins liðu píslarvættisdauða. X merkir neðanjarðardýflissuna Svarta pyttinn (Síyáh-Chál) þar sem Bahá’u’lláh var fangelsaður og leið miklar þjáningar.
Bahá’u’lláh kunngerir köllun sína Meðan Bahá’u’lláh var í fangelsinu í Tehran vitraðist honum að enginn annar en hann sjálfur væri sá sem Bábinn hafði boðað að mundi birtast, hinn fyrirheitni allra trúarbragða. Hann hélt því þó leyndu þar til árið 1863, þegar hann var staddur í fallegum garði í útjaðri Bagdað. Við það tækifæri gerði hann fjölskyldu sinni og nánustu vinum grein fyrir köllun sinni.
Í kjölfarið var hann sendur í útlegð til Tyrklands. Þrátt fyrir þessar ofsóknir laðaðist fólk að Bahá’u’lláh og boðskap hans. Þá gripu óvinir hans til þess ráðs að varpa honum ásamt föruneyti hans, alls um 70 manns, í rammbyggt fangelsi í borginni ‘Akká í Sýrlandi, sem þá laut yfirráðum Tyrkja. Í dag er þetta landsvæði hluti af Ísrael.
Bréf til leiðtoga mannkyns
Frá Adríanópel og síðar frá ‘Akká sendi Bahá’u’lláh bréf og pistla til konunga, keisara og annarra leiðtoga samtímans, bæði andlegra og veraldlegra. Hann kallaði þá til trúar á málstað sinn og hvatti þá til að jafna ágreiningsmál sín, draga úr vopnabúnaði og helga sig allsherjarfriði. Hann sagði að þeim væri ætlaður ákveðinn tími til að snúa sér til Guðs og koma málunum í lag. Ef þeir gerðu það ekki myndu ógnvænlegar hörmungar steðja að þeim úr öllum áttum. Þeir sinntu þessu engu og spádómur Bahá’u’lláh rættist.
Andlát Bahá'u'lláh
Bahá’u’lláh lést árið 1892 í Bahjí, skammt norður af ‘Akká. Grafhýsi hans í Bahjí er mesti helgidómur trúarinnar. Þangað koma pílagrímar alls staðar að úr heiminum.
Ítarlegra lesefni um Bahá’u’lláh á íslensku: Bahá’u’lláh, líf hans og opinberun eftir Eðvarð T. Jónsson.
Ítarlegra lesefni um Bahá’u’lláh á íslensku: Bahá’u’lláh, líf hans og opinberun eftir Eðvarð T. Jónsson.
Frá Adríanópel og síðar frá ‘Akká sendi Bahá’u’lláh bréf og pistla til konunga, keisara og annarra leiðtoga samtímans, bæði andlegra og veraldlegra.

Skreytt opna úr bók með ritum Bahá'u'lláh sem sýnd var í British Musem í tilefni af 200 ára ártíð Bahá’u’lláh.

Riḍván garðurinn í Bagdað. Myndin er tekin um 1960. Í þessum garði opinberaði Bahá’u’lláh köllun sína.

Inngangurinn að helgidómi Bahá’u’lláh í útjaðri ‘Akká. Þangað koma pílagrímar alls staðar að úr heiminum.
Ljós fyrir heiminn
Hér fyrir neðan er kvikmynd um ævi og kenningar Baháʼuʼlláh sem gerð var í tilefni af 200 ára ártíð hans árið 2017. Myndin er með íslenskum texta.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community