‘Abdu’l‑Bahá
„Vér höfum gert þig ['Abdu'l-Bahá] að athvarfi fyrir allt mannkynið, skildi fyrir alla sem eru á himni og jörðu, rammgerðu vígi fyrir hvern þann sem trúað hefur á Guð, hinn óviðjafnanlega, hinn alvitra.“
–Bahá'u'lláh
‘Abdu’l‑Bahá fylgdi ungur föður sínum, Bahá’u’lláh, í útlegð og fangavist. Hann var fangi í 45 ár uns hann var leystur úr haldi eftir byltingu Ungtyrkja árið 1908.
Eining trúarinnar er grundvallaratriði í trú Bahá’u’lláh sem hann tryggði með því að koma á nauðsynlegum öryggisráðstöfunum í því skyni. Til að koma í veg fyrir að trúin sundraðist í margra sértrúarflokka gaf hann fylgjendum sínum fyrirmæli um að snúa sér til elsta sonar síns, ‘Abdu’l‑Bahá, að sér látnum, ekki aðeins sem lögmæts túlkanda kenninga sinna heldur sem fullkominnar fyrirmyndar um anda og kenningar trúarinnar.
Einstakir eiginleikar ‘Abdu’l‑Bahá, þekking hans og þjónusta við mannkyn öfluðu honum mikillar virðingar og juku orðstír hinnar nýju trúar sem hann var í forsvari fyrir.
Í tíð sinni sem forystumaður trúarinnar helgaði hann sig henni algjörlega og boðaði mikilvægi friðar og einingar. Hann hvatti til stofnunar svæðisbundinna bahá’í stofnana og leiðbeindi bahá’í framtaki á sviði mennta-, félags- og efnahagsmála sem þá var á frumstigi.
Á árunum 1911-1912 lagði hann upp frá Landinu helga í heimsókn til Vesturlanda. Hann fór fyrst til Evrópu og síðan til Vesturheims. Ferðir hans juku hróður trúarinnar til muna og fjöldi fólks gekk til liðs við hana.
Þegar heimsstyrjöldin fyrri braust út var ‘Abdu’l‑Bahá kominn heim til Landsins helga. Þar skipulagði hann m.a. ræktunarframkvæmdir í grennd við borgina Tíberías, sem varð til þess að það tókst að afstýra hungursneyð í þeim landshluta meðan á stríðinu stóð. Fyrir vikið var hann aðlaður af breskum yfirvöldum, sem þá stýrðu landinu, að styrjöldinni lokinni.
Í tíð sinni sem forystumaður trúarinnar helgaði hann sig henni algjörlega og boðaði mikilvægi friðar og einingar.

Lituð mynd af ‘Abdu’l‑Bahá sem tekin var í París, í október 1911.

Lituð mynd af ‘Abdu’l‑Bahá sem tekin var af honum um borð í farþegaskipinu S.S. Celtic er hann var að leggja af stað frá New York borg til Liverpool á Englandi þann 5. desember 1912.

‘Abdu’l-Bahá var aðlaður og fékk nafnbótina Sir ‘Abdu’l-Bahá Abbas, K.B.E. Hann notaði hana þó nær aldrei.
Lýsing á ‘Abdu’l-Bahá
Edward G. Browne, fræðimaður frá Cambridge, sem komst í kynni við ʻAbduʼl-Bahá árið 1890, lýsir honum þannig:
„Sjaldan hef ég séð mann sem með útliti sínu einu saman hefur haft jafn sterk áhrif á mig. Hár, sterkbyggður, teinréttur, með hvítan túrban og í hvítum kufli, svart liðað axlarsítt hár, breitt og kröftugt enni sem gaf til kynna skarpar gáfur og ósveigjanlegan viljastyrk, haukfrán augu og sterka en viðfeldna andlitsdrætti. Þetta var það sem ég upplifði á mínum fyrsta fundi með ʻAbbás Effendi, meistaranum, eins og hann er kallaður. Mælskari mann, rökfimari, fundvísari á myndrænar samlíkingar, gjörkunnugri helgiritum gyðinga, kristinna manna og múslima, held ég að vart verði fundinn, jafnvel meðal þess mælska, skarpskyggna og næmgeðja kynþáttar, sem hann tilheyrir. Þessir eiginleikar ásamt fasi, sem er hvort tveggja í senn tiginlegt og innilegt, gerðu það að verkum að ég hætti að undrast þá virðingu sem hann naut langt utan samfélags fylgjenda föður síns. Um mikilleik þessa manns og vald gat enginn efast sem litið hafði hann augum.“
Rit og fyrirlestrar ‘Abdu’l‑Bahá í íslenskri þýðingu:
- Mannleg tilvist og máttur Guðs
- Nokkrum spurningum svarað
- Tafla til Dr. Forels
- Töflur hinnar guðlegu áætlunar
Hér fyrir neðan er heimildarmyndin Exemplar (Fyrirmynd) sem fjallar um ‘Abdu’l‑Bahá. Hún er með íslenskum texta.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
