Allsherjarhús réttvísinnar
„Þar sem hverjum degi fylgir nýtt vandamál og hverju vandamáli hagnýt lausn, ætti að vísa slíkum málum til þeirra sem þjóna í Húsi réttvísinnar svo að þeir megi gera ráðstafanir í samræmi við þarfir og kröfur tímans.“
–Bahá’u’lláh
Allsherjarhús réttvísinnar er alþjóðleg stjórn bahá’í trúarinnar sem Bahá’u’lláh kvað á um í lögbók sinni, Kitáb-i-Aqdas.
Allsherjarhúsið er níu manna ráð sem kosið er á fimm ára fresti af öllum meðlimum andlegra þjóðarráða. Bahá’u’lláh fól Allsherjarhúsi réttvísinnar guðdómlegt vald til að hafa jákvæð áhrif á velferð mannkyns, stuðla að menntun, friði og hnattrænni hagsæld, verja mannlega reisn og stöðu trúar í heiminum. Því er falið að beita bahá’í kenningunum á þarfir þjóðfélags í sífelldri þróun og það hefur vald til að setja lög um þau mál sem ekki er skýrt kveðið á um í helgiritum trúarinnar.
Frá því að það var fyrst kjörið árið 1963 hefur Allsherjarhús réttvísinnar leiðbeint bahá’í heimssamfélaginu til að þróa getu sína til að taka þátt í uppbyggingu hnattrænnar siðmenningar og velsældar. Leiðsögn Allsherjarhúss réttvísinnar tryggir einingu í hugsun og framkvæmd innan bahá’í samfélagsins um leið og það lærir að gera sýn Bahá’u’lláh um heimsfrið að veruleika.
Nánar má lesa um Allsherjarhús réttvísinnar á vef bahá’í heimssamfélagsins.
Myndir á þessari síðu:
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
Bahá'í Media Bank - Copyright © Bahá’í International Community
