Námskeiðin
Námskeiðaröðin
Innihald og sýn námskeiðaraðarinnar, sem þjálfunarstofnanir vinna með um allan heim og sem lýst er í textanum hér á eftir, byggja á efni sem birt er á vef Ruhi stofnunarinnar. Þessar bækur hafa allar verið þýddar á íslensku og eru fyrstu tvær þeirra í yfirfarinni þýðingu og aðgengilegar á vefnum ruhi.org. Aðrar er hægt að panta á Bahá’í þjóðarskrifstofunni en getur tekið 2-3 virka daga að útbúa þær.
Íhugun um líf andans
Bók 1 – Fyrsta bókin í námskeiðaröðinni fjallar að mestu um spurninguna um sjálfsmynd. Hver er „ég“ í setningunni „ég geng á þjónustubraut“? Þrír þættir einstaklingsbundinnar sjálfsmyndar eru kannaðir í bókinni: „Veruleiki tilveru minnar er sál mín sem fer í gegnum þennan heim til að öðlast þá eiginleika sem hún þarfnast á eilífri og dýrðlegri vegferð sinni til Guðs. Mínar dýrmætustu stundir eru þær sem ég á í samtali við Guð, því bænin er hin daglega næring sem sálin mín verður að fá til að ná sínum háleita tilgangi. Eitt helsta viðfangsefni mitt í þessu lífi er að rannsaka hin helgu rit, leitast við að auka skilning minn á hinum guðlegu kenningum og læra að heimfæra þær upp á mitt eigið daglega líf og líf samfélagsins.“ Bókin samanstendur af þremur hlutum: „Að skilja bahá’í ritningarnar“, „Bænir“ og „Líf og dauði“. Hún hvetur þá sem nema hana til að taka fyrsta skrefið á vegi þjónustu með því að halda bænastund á heimili sínu.
Þau ástunda sameiginlega tilbeiðslu í margs konar umhverfi og svara þannig innstu þrá hvers hjarta til að samneyta skapara sínum, sameinast öðrum í bæn, vekja andlega næmni og móta lífsmynstur sem einkennist af trúarhollustu.
Lagt á braut þjónustu
Bók 2 í aðalnámskeiðaröðinni fjallar um hvað það þýðir að feta þjónustustíginn. Hún er í þremur hlutum. Sá fyrsti kannar eðli þeirrar gleði sem fæst af því að þjóna öðrum, en næstu tveir einbeita sér að þeirri þekkingu, færni og eiginleikum sem þarf til að taka þátt í uppbyggjandi samræðum fyrir huga og sál. Í öðrum hluta er fjallað um hæfnina til að hefja daglegar samræður á hærra plan með því að kynna til sögunnar andlegar meginreglur þegar við á. Sá þriðji snýr að samfélagslífinu. Að heimsækja vini og nágranna á heimilum þeirra til að ræða málefni sem eru mikilvæg í andlegri og félagslegri tilveru – annað skrefið á vegi þjónustunnar sem hvatt er til í aðalnámsskeiðaröðinni – styrkir bönd einingar og vináttu sem eru svo nauðsynleg fyrir samfélagslífið. Hlutarnir þrír heita: „Gleðin af að kenna“, „Uppörvandi samræður“ og „Dýpkunarefni“.
„Þegar þau heimsækja hvert annað, fjölskyldur, vini og kunningja, ræða þau á markvissan hátt um andleg málefni, dýpka þekkingu sína á trúnni, deila boðskap Bahá’u’lláh með öðrum og bjóða sífellt fleirum að taka þátt í voldugum andlegum verkefnum.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Námsefni fyrir barnakennslu á fyrsta stigi
Bók 3 – Þriðja þjónustusviðið sem Ruhi stofnunin tekur fyrir er andleg menntun barna. Menntun barna er nauðsynleg fyrir umbreytingu þjóðfélagsins. Bók 3 fjallar um hluta þeirrar þekkingar, færni og eiginleika sem eru nauðsynlegir þeim sem vilja leggja fyrir sig þetta mikilvæga þjónustusvið. Hún er í tveimur hlutum: „Nokkrar meginreglur bahá’í menntunar“ og „Kennslustundir í barnakennslu, fyrsta stig“. Í fyrri hlutanum eru ákveðnar meginreglur og hugtök skoðuð sem felast í menntun út frá bahá’í sjónarhorni. Hann fjallar einnig um hvernig kennari getur stjórnað bekk með miklum kærleika og skilningi og um leið með þeim aga sem er nauðsynlegur til að skapa viðeigandi námsumhverfi. Í seinni hlutanum er efni fyrir tuttugu og fjórar kennslustundir sem ætlað er að þroska andlega eiginleika hjá ungum börnum – eiginleika eins og heiðarleika, örlæti og traustverðleika. Einnig er þar að finna undirbúningsefni fyrir kennara.
„Þau eru sér meðvituð um vonir og væntingar barna um allan heim og þörf þeirra fyrir andlega uppfræðslu og færa út verksvið sitt með það fyrir augum að ná til sífellt stærri hópa þátttakenda í kennslu sem nýtur óskiptrar athygli unga fólksins, og styrkir rætur trúarinnar í þjóðfélaginu.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Tvenndarbirtingin
Bók 4 í aðalnámskeiðaröðinni snýr aftur að spurningunni um sjálfsmynd, hver er „ég“ í staðhæfingunni „ég legg á þjónustubraut“. Sagan mótar að miklu leyti sjálfsmynd einstaklinga, sem og heilla þjóða. Annar og þriðji hluti bókarinnar eru helgaðir námi í ævisögu Bahá’u’lláh, höfundar bahá’í trúarinnar, og fyrirrennara hans, Bábsins. Í fyrsta hlutanum er mikilvægi þessa dags skoðað í stuttu máli. Með því að sjá skýrt þá þætti sem einkenndu fortíðina geta menn lagt af mörkum til að móta framtíðina með árangursríkari hætti.
„Þegar þau heimsækja hvert annað, fjölskyldur, vini og kunningja … dýpka [þau] þekkingu sína á trúnni … og bjóða sífellt fleirum að taka þátt í voldugum andlegum verkefnum.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Kraftar unglinga leystir úr læðingi
Bók 5 – Þessi bók skipar sérstakan sess í námskeiðaröð Ruhí stofnunarinnar. Samkvæmt kenningum bahá’í trúarinnar nær einstaklingur fullþroskaaldri við 15 ára aldur, þegar andlegar og siðferðilegar skyldur verða bindandi. Árin rétt fyrir þennan aldur hafa því sérstaka þýðingu. Þetta er tíminn þegar grundvallarhugmyndir um líf einstaklings og samfélags mótast í huga unglings sem glímir við að skilja að baki venjur bernskunnar. Unglingar á aldrinum 12 til 15 ára hafa mikið fram að færa og hver sá sem kemur fram við þá sem börn missir af tækifærinu til að hjálpa þeim að móta rétta sjálfsmynd. Þeir þrír hlutar sem mynda bók 5 fjalla um nokkrar af þeim hugmyndum, færni, eiginleikum og viðhorfum sem reynslan hefur sýnt að þeir þurfa sem vilja hrinda í framkvæmd námskeiði til andlegrar eflingar unglinga.
„Þau styðja unga fólkið á mikilvægum tíma unglingsáranna og hvetja það til að beita kröftum sínum að framþróun siðmenningar.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Að kenna málstaðinn
Bók 6 – Öllum, af hvaða uppruna og bakgrunni sem er, er velkomið að kynna sér kenningar Bahá’u’lláh og læra hvernig hægt er að nýta þær til að bæta líf sitt. Allir bahá’íar deila því kenningum og fyrirmælum trúar sinnar af örlæti og skilyrðislaust. Þótt útbreiðsla boðskapar Bahá’u’lláh sé ein mikilvægasta þjónustan sem hægt er að veita, er kennsla einnig eðlileg tjáning á ástandi – ástandi þar sem maður er knúinn til að deila með öðrum þeirri þekkingu og gleði sem maður finnur í opinberun hans. Þetta hugtak er kannað í fyrsta hluta bókar 6, „Andlegt eðli kennslunnar“. Hún byggir á þeim skilningi að „vera“ og „gera“ séu óaðskiljanlegir þættir andlegs lífs. Annar og þriðji hluti, „Eiginleikar og viðhorf kennarans“ og „Kennslustarfið“, þróa þessa forsendu frekar. Annar hlutinn fjallar um hvernig innra ástand einstaklingsins stuðlar að og styrkist af viðleitni á sviði þjónustu, en sá þriðji skoðar hvernig nálgast skuli kennslustarfið. Sérstaklega dæmið sem gefið er í þriðja hlutanum, með sögunni um Önnu og Emilíu og hvernig kynna megi trúna fyrir einhverjum sem veit lítið um hana.
„Þegar þau heimsækja hvert annað, fjölskyldur, vini og kunningja … deila [þau] boðskap Bahá’u’lláh með öðrum og bjóða sífellt fleirum að taka þátt í voldugum andlegum verkefnum.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Samstíga á þjónustubraut
Bók 7 er helguð þjónustu sem er mikilvæg fyrir hæfnisuppbyggingarferlið sem lýst er í efni Ruhi stofnunarinnar – nefnilega að hjálpa hópi einstaklinga við nám í aðalnámskeiðaröð hennar. Að fólk veiti hvert öðru samfylgd er það þjónar samfélögum sínum, er aðalatriði í þessu hæfnisuppbyggingarferli. Fyrsti hluti bókarinnar kannar andlega gangverkið í því að sækja fram á brautinni sem námskeiðin marka og vekur athygli á sumum þeirra krafta sem eru að verki. Annar hluti, „Að vera leiðbeinandi í námskeiðum þjálfunarstofnunarinnar“, skoðar þau hugtök, viðhorf, eiginleika og færni sem gera einstaklingi kleift að inna þessa þjónustu af hendi, yfirleitt með því að bjóða átta til tíu vinum í það sem kallað er „námshringur“. Þriðji hluti, „Efling lista í grasrótinni“, er hannaður til að skapa skilning á því hlutverki sem listræn viðleitni getur gegnt við að efla menntaferlið sem námskeiðin stuðla að og styrkja mynstur samfélagslífsins sem það fæðir af sér.
„Margar þúsundir karla og kvenna – öll hin fjölbreytta fjölskylda mannkynsins í hnotskurn – stunda skipulegt nám á hinu skapandi orði, í andrúmslofti sem er hvort tveggja í senn alvörugefið og upplyftandi.“
– Riḍván 2008 – Til bahá’ía um allan heim
Sáttmáli Bahá’u’lláh
Bók 8 – Í grundvallaratriðum mótast sjálfsmynd bahá’í samfélagsins af þeirri sannfæringu að íbúar jarðarinnar séu ein þjóð. Sú staðreynd að mannkynið er eitt, er þungamiðjan sem allar kenningar bahá’í trúarinnar snúast um. Til þess að eining mannkyns verði að veruleika í mannlegum samskiptum þarf mun meira en samvinnu milli fólks og þjóða. Hún krefst þess að samböndin sem binda okkur saman sem meðlimi einnar mannkynsfjölskyldu séu endurskilgreind frá grunni – ef á að rísa efnislega og andlega velmegandi heimssiðmenning sem verður öllu mannkyni til góða. Í byggðum og borgarhverfum um allan heim vinna bahá’íar að því að koma á mynstri sem getur hjálpað til við að móta framtíðarsamfélag, samfélag þar sem sambönd milli einstaklinga, hópa, stofnana og þjóða mótast af lögmálinu um einingu mannkyns. Þessi bók fjallar um hvernig sameiningarkrafturinn sem felst í sáttmálanum sem Bahá’u’lláh stofnaði gerir þeim sem tileinka sér kenningar hans, samfélögunum sem þeir byggja og stofnununum sem þeir koma á fót kleift að vera sameiningarafl. Eitt mikilvægt hugtak sem fjallað er um er brýn þörf fyrir „miðju“ til að varðveita einingu. Sú staðreynd að Bahá’u’lláh hefur komið þessari miðju á fót með sáttmála sínum er grundvallarhugmynd sem tekin er fyrir í fyrsta hlutanum og þýðing hennar er útlistuð nánar í næstu tveimur hlutum, í umfjöllun um einkenni stjórnskipulagsins sem stýrir málefnum bahá’í samfélagsins. Vonast er til að nám í efni þessarar bókar muni styrkja ásetning þeirra sem hrífast af sýninni um réttlátan og friðsælan heim, sem sett er fram í kenningum bahá’í trúarinnar, til að ganga veg þjónustu við meðbræður sína.
„Þannig verndar og varðveitir sáttmálinn framgang skoðanaskipta og lærdóms um þýðingu opinberunarinnar og framkvæmd fyrirmæla hennar fyrir mannkynið ...“
– 28. nóvember 2023 – Til bahá’ía um allan heim
Myndir á þessari síðu:
Frá Ruhi stofuninni - Copyright © Ruhi Institute
Frá Ruhi stofuninni - Copyright © Ruhi Institute
